Sæl öll.
Nú er skipulagt skólastarf byrjað á öllum deildum og við bjóðum öll ný börn og aðstandendur þeirra innilega velkomin í leikskólann og alla hina velkomna aftur.
Við höldum áfram að vinna markvisst með tónlist og jákvæðan aga. Við bendum foreldrum og forráðamönnum að skoða bæði upplýsingar varðandi tónlistarvinnuna og Jákvæðan aga á heimasíðunni
Aðlögun nýrra barna stendur yfir og okkur finnst hún ganga bara mjög vel. Þetta er mikil breyting fyrir bæði börn og foreldra og mikilvægt er að gefa sér tíma til að aðlagast. Oft er þessi tími erfiðari fyrir foreldrana en börnin og við viljum benda foreldrum á að alltaf er hægt að eiga samtal við deildarstjóra og eða aðra stjórnendur á leikskólanum ef eitthvað er óljóst eða bara til hughreystingar. Orð eru til alls fyrst.
Okkur hlakkar mikið til að vera með ykkur í vetur.
Bestu kveðjur
Starfsfólk leikskólans