Sumarlokun 2021

FRÆÐSLUEFNI FYRIR FORELDRA

Foreldrar hafa væntingar, vonir og óskir varðandi barn sitt og framtíð þess. Spurningar eins og líður barninu vel? Kann það góð samskipti? Á það góða vini? Gengur námið vel? Mun barnið halda áfram í skóla? Mun barnið mitt hafa val í lífinu? Ein af undirstöðum velgengni er að ná tökum á máli og læsi. Það að ná tökum á máli og læsi er samvinnuverkefni margra. Það eru foreldrar sem gegna veigamesta hlutverkinu en afar, ömmur, systkini, vinir, kennarar og fleiri skipta einnig miklu máli. Foreldrar eru fyrstu kennarar barnsins og hafa mestu áhrifin á líf þess og nám.

Endurskinsmerki í boði ÞÞÞ

Í dag komu starfsmenn frá Bifreiðastöð ÞÞÞ færandi hendi og gáfu okkur endurskinsmerki sem börnin taka með sér heim í lok dags. Það er mikilvægt að sjást vel í myrkrinu. Takk fyrir okkur

Skipulagsdagur

Fimmtudaginn 18.febrúar er leikskólinn lokaður vegna Skipulagsdags.

Ný heimasíða

Nú erum við komin með nýja heimasíðu og erum að vinna að uppsetningu hennar. Það mun taka nokkra daga en vonandi mun sú vinna ganga vel og við getum farið að nota hana ásamt facebook og Völu.