Sumarkveðja

Sæl öll og takk fyrir frábært skólaár sem nú er að ljúka.

Framundan er sumarlokun leikskólans frá og með 6.júlí, til og með 3.ágúst. Við opnum aftur klukkan 8.00 þann 4.ágúst.

Það eru margir farnir í sumarleyfi, bæði börn og starfsfólk og þá er skipulagt skólastarf búið og tíminn fram að lokun nýttur til ýmissa annarra verkefna, sum undirbúin og önnur koma óvænt upp á. Það er þannig sem leikskólalífið er og starfsmenn og börn þurfa að sveigja sig og beygja eftir þörfum. Við teljum að það undirbúi börnin vel fyrir lífið framundan, það er sjaldnast bein leið.

Við fengum til okkar flotta krakka úr Vinnuskólanum og munu þau "standa vaktina" með okkur fram að lokun. Það er alltaf gaman að fá krakkana inn, þau virka vel á börnin og eru tilbúin í allskonar verkefni með þeim. Þau eru sumarboðinn okkar.

Flutningur á milli deilda

Eins og flestum á að vera ljóst þá fer niðurröðun á deildir og flutningar á milli deilda alltaf eftir framboði og eftirspurn eftir plássi á hverjum tíma. Um það höfum við því miður lítið að segja. Nánast undantekningalaust ganga þessir flutningar mjög vel en vel skiljanlegt ef ykkur foreldrunum vex þetta í augum. Þetta skipulag er búið að ganga vel í mörg ár og munum að starfsfólkið er margreynt í þessu og engin hefur eins mikla aðlögunarhæfni og börnin. Við biðjum ykkur líka að ganga í lið með okkur til að gera öllum þetta eins auðvelt og hægt er.

Nokkrar fyrirspurnir hafa komið varðandi elstu deildina, varðandi þá staðreynd að þau börn(fædd 2021) fara ekki á Lund eins og reglan hefur verið undanfarin ár. Ástæðan er sú að árgangur 2021 er lítill árgangur, telur "bara" 20 börn sem þýðir að til að rými leikskólans nýtist sem best þá var farin sú leið að halda þeim árgangi áfram á sinni deild sem skólahóp í stað þess að vera með tvo árganga saman á síðasta ári þeirra í leikskólanum. Verkefni barna á elsta ári eru mjög mörg, taka tíma og skipulag og til að auðvelda skipulag eins og hægt er þá var farin þessi leið. Einhver börn hafa orðið svekkt yfir þessari niðurröðun en við því er ekkert að gera en ég veit að þeim mun halda áfram að líða vel á Hnúki ásamt sínu starfsfólki.

Gert er ráð fyrir að börnin mæti á sína „gömlu deild“ eftir sumarfrí og fari svo á nýju deildina þann 7.ágúst og verða sótt af þangað í lok dags. Þau börn sem eru í lengra sumarleyfi en til 7.ágúst koma beint á sína nýju deild

Skóladagatal 2026-2027

Skóladagatal fyrir skólaárið 2026-2027 er komið á heimasíðu leikskólans. Við biðjum ykkur að skoða það mjög vel. Starfsmenn leikskólans eru að fara í námsferð næsta vor (2027) og munu því verða breytingar á tveimur skipulagsdögum og munu þeir verða merktir á dagatalinu ásamt Skráningardögum en gert ráð fyrir saman fyrirkomulagi og í ár, þ.e. 10 skráningardagar og þá niðurfelling á desember reikningi. Ég set inn hérna hlekk sem útskýrir þetta betur ásamt breytingum á gjaldskrá og fleiru.

Breytingar á verklagsreglum

Starfsfólk Vallarsel óskar ykkur öllum gleðilegs sumarfrís, megi allir njóta sem mest og best. Sjáumst hress og kát í ágúst.