Söngvavor-Íslensku menntaverðlaunin

Íslensku menntaverðlaunin-Framúrskarandi þróunarverkefni

Verkefnið Söngvavor, sem er samstarfsverkefni leikskóla og tónlistarskóla, hlýtur verðlaunin í ár.

Verkefnið hófst árið 2010 með samstarfi Tónskóla Sigursveins og leikskóla í Reykjavík og hefur síðan vaxið og dafnað.

Síðastliðið vor náði verkefnið til rúmlega 3.000 barna í 140 leikskólum og 15 tónlistarskólum víðs vegar um land.

Á hverju ári er eitt íslenskt tónskáld í forgrunni og tónverk þess sérstaklega útsett með tilliti til raddsviðs leikskólabarna og færni ungra hljóðfæraleikara. Leikskólabörnin heimsækja tónlistarskólana og æfa ásamt 10 til 16 ára nemendum sem sjá um hljóðfæraleikinn. Verkefninu lýkur síðan með tónleikum í menningarhúsum viðkomandi sveitarfélaga.

Vallarsel, ásamt öðrum leikskólum á Akranesi, tók þátt í þessu frábæra verkefni og við erum stolt af þeirri þátttöku og vonandi verður við þátttakendur áfram.

Reynsla og rannsóknir benda til þess að þátttaka í verkefninu, ekki síst sú upplifun að koma fram á sviði fyrir fjölskyldu og nærsamfélag, hafi einstaklega jákvæð áhrif á sjálfsmynd barna og félagsfærni þeirra.