Sæl.
Frá árinu 2012 hefur Tónskóli Sigursveins boðið 33 leikskólum í Reykjavík upp á frábært samstarf. Tónskólin færir nú þessa hugmyndina til okkar, þ.e leikskólanna á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit og bjóða okkur nú að taka þátt í verkefninu og við erum mjög spennt að vera með.
Markmið þessa verkefnis er að halda tónleika að vori þar sem elstu leikskólabörnin eiga sviðið ásamt ungmennum tónlistarskólanna sem munu leika undir söng barnanna.
Árlega er valið íslenskt tónskáld og í ár er Dr. Gunni tónskáld ársins.
Börnin á Lundi hafa verið mjög dugleg að æfa sig fyrir þennan viðburð og við gerum ráð fyrir að þið foreldrar og forráðamenn hafið fengið smjörþefinn af því hvaða dagskrá verður á þessum tónleikum.