Rauður dagur í Vallarseli

Á síðasta föstudag eða þann 17.desember héldum við upp á rauðan dag í leikskólanum. Þeir sem vildu máttu mæta í einhverju rauðu eða jafnvel sparifötum, allt eftir því hvernig börn og starfsfólk vildu hafa það.

Vegna aðstæðna í leikskólanum þá hélt hver deild sitt jólaball og svo komu vaskir jólasveinar í heimsókn til okkar. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu þá komu þessar elskur á gluggana til okkar og gáfu börnunum mandarínur og léku á alls oddi.

Eitthvað var myndavélin að stríða okkur en við látum þessa mynd af vöskum jólasveinum fylgja með.