Leiksýning í boði foreldrafélagsins

Sæl.

Í morgun fengum við frábæra heimsókn. Langleggur og Skjóða mættu til okkar og sögðu börnum og starfsfólki sögur af mömmu sinni henni Grýlu.

Sýningin vakti mikla lukku og viljum við þakka foreldrafélaginu okkar kærlega vel fyrir þessa skemmtilegu sýningu. Það er svo gott að brjóta upp hverdaginn með svona.

Meðfylgjandi eru myndir af Langlegg og Skjóðu