Fréttir af foreldrafélagi

Kæru foreldrar og forráðamenn. Ykkur hefur borist í heimabanka reikningur frá foreldrafélagi Vallarsels að upphæð kr. 2000 og 3500 fyrir tvö börn og er þetta fjármagn notað í þágu barnanna. Sem dæmi um hvað foreldrafélagið nýtir peninginn í er t.d grillhátíð að vori fyrir foreldra og börn, útskriftarferð elsta árgangs, jólaskemmtanir/vorskemmtanir, gjafir fyrir börnin, gjafir handa leikskólanum sem nýtist í leik og starfi með börnunum ykkar. Virkt og öflugt foreldrafélag er mikill og ómetanlegur styrkur fyrir skólann.