Sjötti febrúar er Dagur leikskólans en á þeim degi árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara með sér sín fyrstu samtök.
Markmiðið með deginum er að stuðla að jákvæðri umræðu um leikskólastarf og um leið beina athygli samfélagsins að því faglega og metnaðarfulla starfi sem innt er af hendi í leikskólum landsins á degi hverjum.
Í dag er haldið upp á daginn á öllum deildum á leikskólanum. Allar deildar eru klæddar í mismunandi liti og svo verður haldið ball í salnum okkar. Okkur þykir mjög vænt um þennan dag og við höldum hann hátíðlegan.