Dagar umburðarlyndis 6.-8.nóvember

Hæ allir.

Dagana 6. – 8. nóvember fögnum við fjölbreytileikanum og höldum daga Umburðarlyndis og þann 8. nóvember er Dagur gegn einelti.

Það eru Barnaheill – Save the children sem standa að þessum dögum í gegnum Vináttu sem er forvarnarverkefni gegn einelti. En eitt af gildum Vináttu er einmitt Umburðarlyndi

Hinir fullorðnu í umhverfi barnsins móta þeirra viðhorf, framkomu og samskipti. Verum góðar fyrirmyndir fögnum fjölbreytileikanum í samfélagi okkar og sýnum Umburðarlyndi.

Skilgreining Vináttu á Umburðarlyndi

Að viðurkenna og skilja mikilvægi og gildi fjölbreytileikans og að koma fram við alla aðra af virðingu.

Umburðarlyndi snýst um hæfileikann eða viljann til að viðurkenna það sem er frábrugðið því sem maður sjálfur telur rétt.

Það snýst um skilning og viðurkenningu á því að skoðanir og lífsmáti annarra er jafn mikils virði og okkar – jafnvel þótt maður sé ekki alveg sammála viðkomandi eða eigi bágt með að skilja hann eða setja sig í spor hans.