Áríðandi tilkynning frá Akraneskaupsstað

Kæru foreldrar og forráðamenn ATHUGIÐ

Í ljósi kringumstæðna í samfélaginu, þar sem fjöldi starfsmanna er smitaður eða er í sóttkví hefur bæjarráð tekið ákvörðun um að á morgun föstudaginn 5. nóvember mun öll starfsemi falla niður í leikskólum, grunnskólum, tónlistarskóla og frístundastarfi bæjarins.

Vegna þess hve fáliðað er í stofnunum okkar vegna smita og sóttkvíar verður lágmarks starfsemi það sem eftir er dagsins í dag og eru foreldrar beðnir um að gera ráðstarfanir til þess að sækja börn sín um hádegi í dag ef þess er nokkur kostur. Ef foreldrar hafa ekki tök á vegna vinnu sinnar að sækja ung börn sínum hádegi þá verður það leyst.

Eldri börn grunnskólanna verða send heim um hádegi.

Allar íþróttaæfingar á vegum félaga innan ÍA falla niður í dag og fram yfir helgi

Með von um að með samstöðu náum við að stoppa úrbreiðslu smita í samfélaginu.

Kveðja

Vilborg Valgeirsdóttir leikskólastjóri Vallarsels