Tengiliður barna

Tengiliður

Strax við fæðingu barns, eða eftir atvikum á meðgöngu, eiga foreldrar og börn rétt á þjónustu tengiliðar eftir því sem þörf krefur. Hlutverk tengiliðar er fyrst og fremst að veita upplýsingar, aðstoða foreldra og barn og styðja við samþættingu þjónustu á fyrsta stigi í samræmi við óskir foreldra og eða barns. Tengiliður er einstaklingur í nærumhverfi barnsins:

  • Frá fæðingu og þar til barn hefur nám í leik- eða grunnskóla er tengiliður starfsmaður heilbrigðisstofnunar.
  • Þegar barn er við nám í leik-, grunn- eða framhaldsskóla er tengiliður starfsmaður skólans þar sem barn er við nám.
  • Ef það á ekki við er tengiliður starfsmaður félagsþjónustu þess sveitarfélags þar sem barn á lögheimili.

Tengiliður í leikskólanum Vallarsel er Kristrún Matthíasdóttir aðstoðarleikskólastjóri.

Með því að ýta á gulu mynda er hægt að nálgast frekari upplýsingar um farsæld barna á Akranesi.