ForsíðaNemendurForeldrarUm skólann
...syngjandi glöð í leik og starfi

Einn drengur á deildinni er með ofnæmi fyrir eggjum og hnetum.  Hin börnin eru mjög dugleg að passa uppá að hann fái ekkert sem hann má ekki borða.  Þegar það var slátur í matinn spurði einn drengurinn "Eru nokkuð egg eða hnetur í slátri." 

Prenta vefsíðu
20. janúar 2012 13:48

Bóndadagur - Þorri byrjar

Í dag er fyrsti dagur í Þorra,  Bóndadagur.  Við minntumst dagsins í söngstund í morgun og hádeginu þar sem boðið var upp á  grjónagraut með slátri ásamt  "léttu" þorrasmakki.  Allir voru búnir að gera sér viðeigandi höfuðskraut og matarborðin voru skreytt við hæfi.

 

 
Vallarsel | Skarðsbraut 6 | 300 Akranes | Sími: 433-1220 | vallarsel@akranes.is