Íris hefur verið að ræða mikið um að það sé hollt og gott að borða grænmeti. Eitt barnið kemur stolt til Heiðu og Írisar og segir, ég á bugles heima hjá mér. Þá segir Heiða, ég á saltstangir heima hjá mér. Barnið sný sér að Írisi og segir hvað átt þú. Íris segir að hún eigi bara ekkert heima hjá sér. Þá segir barnið. Íris átt þú ekki bara grænmeti. :)
Nú er fyrsta vikan að líða síðan við opnuðum aftur eftir sumarleyfi. Börnin farin að koma inn og yndislegt að taka á móti þeim hressum og kátum eftir fríið. Aðlögun yngstu barnanna er komin af stað og þau átta fyrstu byrjuð. Alls verða aðlöguð 38 börn á tvær deildir í haust. Ennþá er hluti af starfsfólkinu í fríi en nánast allir verða komnir í vinnu aftur þ. 16. ágúst. Við erum bjartsýn og glöð í Vallarseli og hlökkum til að vera með ykkur í vetur.