ForsíðaNemendurForeldrarUm skólann
...syngjandi glöð í leik og starfi
Börnin voru að borða eplabáta og Kristjana fékk sér líka.  Hún beit 1 bita og stakk síðan restinni upp í sig.  Þá sagði ein stúlka: " Þú ert að troða."  Kristjana varð heldur kindarleg, því þetta var alveg rétt.  Síðan sagði Kristjana við einn strák sem ar að biðja um meira epli en var með fullan munn: "Núna ert þú að troða."   Þá sagði stúlkan: "Hann er að gera eins og þú."

 

Prenta vefsíðu
4. júní 2010 08:19

Skemmdarverk.

Það var ljót aðkoman að skólanum okkur í gærmorgun fimmtudag, þegar börn og starfsfólk kom til starfa.  Búið var að brjóta tvær stórar rúður og sígarettustubbar og brunablettir út um alla lóð og hland í flöskum.  Það er ótrúlegt að hugsa sér að einhver hafi smekk fyrir slíku.  Við hvetjum okkar góðu nágranna til að láta vita um allar ferðir, sem vekja grunsemdir í garðinum, til lögreglu.  Skólinn og lóðin í kring er eign okkar allra og við eigum ekki að láta bjóða okkur slíka hegðun.  Fyrir lítil börn er áfall að koma að skólanum sínum svona og upplifa að einhver vilji skemma og eyðileggja staðinn sem þau eru á meirihlutann af sínum vökutíma.  Við vonum svo sannarlega að enginn tengdur börnunum í skólanum hafi gert sér þetta að leik.    

 

 
Vallarsel | Skarðsbraut 6 | 300 Akranes | Sími: 433-1220 | vallarsel@akranes.is