ForsíðaNemendurForeldrarUm skólann
...syngjandi glöð í leik og starfi

Eitt barn er að fara að gifta "sig".  Það er mikið að segja frá því að þetta sé í vændum og að það ætli að giftast mömmu sinni og pabbinn verði hann.  Heiða spyr hann hvort hann ætli ekki bara að vera hringaberi?  Barnið snýr sér að Heiðu og segir: Nei hey ég ætla sko að vera BLÁBERI. 

Prenta vefsíðu
16. apríl 2010 16:50

Glaðir krakkar og kennarar.

Rétt í þessu voru elstu börnin á Lundi að koma í hús úr útskriftarferðinni.  Þau byrjuðu á að fara á sinfóníutónleika í Háskólabíói þar sem þau hlustuðu á "Maximús Músikús trítla um tónlistarskólann".  Í hádeginu fóru þau á veitingastað og borðuðu og enduðu svo á að fara í Árbæjarsafn.  Ferðin gekk vel í alla staði og allir komu glaðir og ánægðir, en frekar þreyttir heim.  

 

 
Vallarsel | Skarðsbraut 6 | 300 Akranes | Sími: 433-1220 | vallarsel@akranes.is