ForsíðaNemendurForeldrarUm skólann
...syngjandi glöð í leik og starfi
Börnin voru að borða eplabáta og Kristjana fékk sér líka.  Hún beit 1 bita og stakk síðan restinni upp í sig.  Þá sagði ein stúlka: " Þú ert að troða."  Kristjana varð heldur kindarleg, því þetta var alveg rétt.  Síðan sagði Kristjana við einn strák sem ar að biðja um meira epli en var með fullan munn: "Núna ert þú að troða."   Þá sagði stúlkan: "Hann er að gera eins og þú."

 

Prenta vefsíðu
16. apríl 2010 13:24

Annasöm vika.

Nú er að ljúka mjög svo annasamri viku hjá elstu nemendunum á Lundi.  Vorskólinn er búinn að vera alla vikuna í báðum skólum og mikið að gera og margt að sjá.  Í morgun fóru þau svo í útskriftarferð til Reykjavíkur og verður gaman að að heyra frá þeirri ferð þegar þau koma til baka.  Hjá öðrum nemendum undu allir glaðir við sitt og vinna fyrir vorhátíðir og opnun myndlistarsýningar, sem verða vikuna 3.-7.maí,  komin á fullt skrið.    

 

 
Vallarsel | Skarðsbraut 6 | 300 Akranes | Sími: 433-1220 | vallarsel@akranes.is