ForsíðaNemendurForeldrarUm skólann
...syngjandi glöð í leik og starfi

Einn drengur á deildinni er með ofnæmi fyrir eggjum og hnetum.  Hin börnin eru mjög dugleg að passa uppá að hann fái ekkert sem hann má ekki borða.  Þegar það var slátur í matinn spurði einn drengurinn "Eru nokkuð egg eða hnetur í slátri." 

Prenta vefsíðu
29. mars 2010 12:01

Starfsmenn til Akureyrar.

Tvo undanfarna föstudaga hafa starfsmenn frá Vallarseli farið í náms- og kynnisferð í leikskólann Lundarsel á Akureyri.  Þangað fóru þeir til að kynna sér barnaheimspeki.  Hún fellur vel að heimspekinni okkar sem við tengjum tónlistinni og komum við til með að nýta okkur þessa ferð í áframhaldandi þróunarvinnu með það námsefni.  Þetta var mjög fróðleg og skemmtileg ferð og margt að sjá og heyra. 

 

 
Vallarsel | Skarðsbraut 6 | 300 Akranes | Sími: 433-1220 | vallarsel@akranes.is