6. febrúar 2012 10:41
Góður dagur - Dagur leikskólans
Áðan fórum við, ásamt öllum hinum leikskólunum, í göngutúr að Stjórnsýsluhúsinu í tilefni Dags leikskólans. Þar tók bæjarstjóri, ásamt öllu starfsfólki bæjarskrifstofunnar á móti okkur. Við sungum tvö lög og afhentum svo plaggat sem gefið var út í tilefni dagsins, en á því eru gullkorn frá leikskólabörnum sem minna okkur á hvað lífið með börnum er dásamlegt.
Bæjarstjóri sagði í ávarpi sínu hve mikilvægt það er að eiga metnaðarfulla og faglega leikskóla og minnti á það frábæra starf sem í þeim er unnið.
Það er fátt sem stöðvar leikskólabörn og starfsfólk í starfi sínu eins og sést best í dag að fara með allan skarann í göngu í hífandi roki.
meira...
3. febrúar 2012 01:10
Dagur leikskólans 6.febrúar
N.k. mánudag 6.febrúar verður dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í öllum leikskólum landsins. Þessi dagur er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla, Sambands íslenskra sveitarfélaga, mennta- og menningarráðuneytisins og Heimilis og skóla.
Þetta er merkisdagur í sögu leikskólanna og ber að minnast frumkvöðlanna sem árið 1950 stofnuðu fyrstu samtök leikskólakennara á Íslandi. Það er því vel við hæfi að minnast hans, kynna starfsemi skólanna og þess mikilvæga starfs sem þar er unnið.
Allir leikskólarnir á Akranesi ætla sameinast um að minna á sig og munum við fara í skrúðgöngu að ráðhúsinu kl 9.30. Morguninn endum við svo á söngstund í salnum kl. 11.30.
meira...
30. janúar 2012 10:57
Tannverndarvika
Í dag er fyrsti virki dagur tannverndarviku sem Lýðheilsustöð stendur fyrir, en hún hófts í gær. Þema vikunnar að þessu sinni tengist sykri og sykur- og sælgætisneyslu. Við munum vinna á margvíslegan máta þessa viku í verkefnum sem koma inn á tannvernd. M.a. fara í heimsókn til tannlækna, vinna verkefni heima í skóla, grænmetisbakki verður í boði á föstudag o.fl. Ekki er of oft kveðið á um það að gæta að sykur- og sælgætisneyslu barna, sem í dag er komin út fyrir öll skynsamlega mörk.
meira...
20. janúar 2012 01:48
Bóndadagur - Þorri byrjar
Í dag er fyrsti dagur í Þorra, Bóndadagur. Við minntumst dagsins í söngstund í morgun og hádeginu þar sem boðið var upp á grjónagraut með slátri ásamt "léttu" þorrasmakki. Allir voru búnir að gera sér viðeigandi höfuðskraut og matarborðin voru skreytt við hæfi.
meira...
13. janúar 2012 11:02
Fréttabréf janúar.
meira...
12. janúar 2012 02:33
Símkerfið komið í lag
Símkerfið í skólanum er nú komið í lag. Við vonum að ekki hafi skapast mikil óþægindi á með það lá niðri.
meira...
9. janúar 2012 09:52
Skemmtileg heimsókn.
Í morgun fengum við skemmtilega heimsókn, þegar Snorri Guðmundsson dýraeftirlitsmaður Akraneskaupstaðar kom í heimsókn í skólann og fræddi börnin um umgengi við hunda. Þetta er frábært framtak og full þörf á að fræða og ræða við börnin reglur og umgengni í sambandi við hunda.
meira...
6. janúar 2012 08:52
Ársskýrsla Vallarsels.
Búið er að setja ársskýrslu Vallarsels fyrir skólaárið 2010-2011 á heimasíðuna. Það er hægt að nálgast hana hér. Góða helgi.
meira...