Vikan 23-27 janúar
Heil og sæl.
Það hefur verið nóg að gera hjá okkur þessa vikuna.
Á mánudaginn vorum við í hópastarfi og er það aðeins með breyttu sniði. Við ætlum að vera í fínhreyfingum og málörvun til skiptis út febrúar.
Á mánudaginn átti hann Rafael Már 4 ára afmæli og óskum við honum og fjölskyldu hans til hamingju með daginn.
Á þriðjudaginn fórum við í bókasafnið og hlustuðum við á söguna Maríuhæna, Maríuhæna. Eftir það fengum við að skoða bækurnar á safninu.
Á miðvikudaginn fórum við í tónlist.
Á miðvikudaginn átti einnig hann Arnar Már 4 ára afmæli og óskum við honum og fjölskyldu hans til hamingju með daginn.
Á fimmtudaginn fórum við í heimspeki og má sjá afrakstur þess í forstofunni okkar.
Á föstudaginn var svo samsöngur og áttum við 5 börn
sem spiluðu með „hljómsveitinni“.
Einnig var sungið fyrir afmælisstrákana okkar.
Í næstu viku eigum við listasmiðju og þá er líka tannverndarvika hjá okkur.
Takk fyrir góða viku og góða helgi
Kristjana, Danuta, Hanna,
Kristbjörg, Lísbet og Gullý
Vikan 16-20 janúar
Sæl.
Gleðilegan bóndadag.
Nú er enn ein vikan liðin og höfum við alltaf nóg að gera.
Fyrir utan hið hefðbundna starf þá erum við búin að vera að undirbúa þorrann.
Við útbjuggum okkur „víkingahatta“ og einnig bjuggu stelpurnar til blóm
sem þær gáfu strákunum í bóndadagsgjöf.
Á föstudaginn var síðan þorrablót hjá okkur í hádeginu.
Í tilefni dagsins mættum við flest í lopapeysum og ullarsokkum
og þannig fórum við í samsöng.
Takk fyrir góða viku og góða helgi.
Kristjana, Danuta, Hanna,
Kristbjörg, Lísbet og Gullý.
Vikan 9-13 janúar 2012
Í þessari viku höfum við haft ýmislegt fyrir stafni.
Á mánudaginn byrjuðum við aftur í skipulögðu starfi og var hópastarf þá. Við erum búin að breyta hópunum, þannig að það er blandað stelpur og strákar í hverjum hóp.
Einnig kom til okkar hann Snorri hunda eftirlitsmaður með hundana sína og var hann að tala við okkur um umgengni við ókunnuga hunda.
Við byrjuðum líka þennan mánudag á því að hafa þjón. Sér hann þá um að leggja á borð og bjóða til borðs.
Þetta er afskaplega spennandi og fylgjast börnin vel með
því hver er þjónn hverju sinni.
Á þriðjudaginn var svo hreyfing hjá okkur og vorum við í þrautabraut.
Á fimmtudaginn byrjuðum við í heimspeki og gekk það bara mjög vel. Við byrjum bara rólega og prófum okkur áfram.
Lagið sem við erum að taka fyrir núna í heimspeki heitir
„Háttatími á himnum“.
Við erum mjög spennt að prófa þetta í vetur.
Á föstudaginn var svo samsöngur hjá okkur
og þar skiptust börnin á að vera í „hljómsveit“
sem spilaði undir hjá okkur.
Takk fyrir góða viku og góða helgi.
Kristjana, Danuta, Hanna,
Kristbjörg og Lísbet.
Janúar 2012
Heil og sæl og gleðilegt ár.
Þessi vika er búin að líða í rólegheitunum hjá okkur.
Allir eru voða glaðir að hittast aftur.
Við byrjum á öllu skipulögðu starfi í næstu viku.
En þá ætlum við að byrja í heimspeki.
Þann 27. desember átti hún Nikola afmæli
og óskum við henni og fjölskyldu hennar
til hamingju með daginn.
Í vikunni bjuggum við okkur til grímur
til að hafa á þrettándabrennunni.
Í morgun var samsöngur þar sem við sungum jólalögin okkar.
Takk fyrir vikuna og góða helgi,
Kristjana, Danuta, Hanna,
Kristbjörg og Lísbet.
Kæru börn og foreldrar
Bestu óskir um
gleðileg jól.
Jólakveðja
Kristjana, Danuta, Hanna,
Kristbjörg og Lísbet.
Vikan 12 – 16 des
Heil og sæl
Af okkur er allt gott að frétta, við erum þessa dagana að undirbúa jólin í rólegheitum og höfum bara gaman að.
Á miðvikudaginn bauð Lundur okkur að koma og horfa á helgileikinn þeirra.
Í dag (föstudag) var rauður dagur hjá okkur
og var jólaball og jólamatur.
Mjög góður dagur í alla staði.
Takk fyrir vikuna og góða helgi.
Kristjana, Danuta, Hanna,
Kristbjörg og Lísbet
Vikan 5-9.des
Heil og sæl.
Það er aldeilis búið að vera nóg að gera
hjá okkur þessa vikuna.
Það hefur verið svolítið um veikindi hjá okkur og vonum við að börnin fari að jafna sig á þeim.
Fyrri partinn vorum við að æfa okkur fyrir jólaskemmtunina sem var á miðvikudaginn 7.des.
Á þriðjudaginn bökuðum við kökur til að bjóða á skemmtuninni.
Jólaskemmtunin heppnaðist alveg svakalega vel og vorum við ferlega stoltar af þessum frábæru börnum.
Takk fyrir frábæra skemmtun.
Á Föstudaginn komu svo séra Eðvarð og organistinn, Sveinn Arnar og voru þeir með aðventustund með okkur.
Við erum þessa dagana að föndra og pakka inn jólagjöfum. Njóta þess að vera saman og hafa það rólegt og notalegt.
Minnum á RAUÐA DAGINN sem er á föstudaginn og þá verður hjá okkur jólaball og jólamatur.
Allir að koma í einhverju rauðu.
Takk fyrir frábæra viku og góða helgi.
Kristjana, Danuta, Hanna,
Kristbjörg og Lísbet.
Vikan 28-2des
Heil og sæl
Þessi vika var með öðru sniði en venjulega.
Það var vinavika í leikskólanum og okkar vinadeild var Lundur. Við skiptumst á að fara í heimsókn á Lund og einnig kom Lundur í heimsókn til okkar. Á fimmtudaginn endaði svo vinavikan á balli inni í sal.
Þetta heppnaðist mjög vel og skemmtu allir sér vel saman.
Á þriðjudaginn bauð foreldrafélagið okkur upp á leiksýninguna: Strákurinn sem týndi jólunum.
Á miðvikudaginn fórum við í tónlist og æfðum fyrir jólaskemmtunina okkar.
Á fimmtudaginn varð hann Þorbjörn Tómas 3 ára,
við óskum honum og fjölskyldu hans
innilega til hamingju með daginn.
Á föstudaginn var svo aðventustund hjá okkur þar sem við kveiktum á 2 kertinu og sungum jólalög.
Hann Þorbjörn Tómas fékk að kveikja á kerti þar sem hann var afmælisbarn. Svo var að sjálfsögðu sungið fyrir hann afmælissönginn.
Okkur langar til þess að börnin hafi jólasveinahúfur á jólaskemmtuninni okkar og það væri vel þegið ef þið gætuð komið með fyrir þau.
JÓLASKEMMTUNIN OKKAR ER Á MIÐVIKUDAGINN 7. DES. KL.14.30
Takk fyrir vikuna og góða helgi
Kristjana, Danuta, Hanna,
Lísbet og Kristbjörg
21.-25. Nóvember
Heil og sæl.
Við viljum byrja á því á því að þakka ykkur kærlega
fyrir komuna á opna húsið í morgun.
Það var alveg svakalega gaman að sjá hversu margir gátu komið.
Takk enn og aftur.
Við látum fylgja hérna með uppskriftinni af saltleirnum sem
við vorum að nota.
2 bolla fínt salt
2/3 bolli af vatni
Þetta er hitað upp að suðu og tekið af hellunni.
1 bolli Maizena mjöl
½ bolli kalt vatn.
Sett út í og hrært.
Gangi ykkur vel og góða skemmtun.
Á fimmtudaginn 16. Nóv var dagur íslenskrar tungu og fluttu börnin kvæðið: hefurðu séð hana systur mína.
Á föstudaginn var ball í salnum.
Á mánudaginn var hópastarf og
hreyfing á þriðjudaginn.
Á miðvikudaginn var tónlist og erum við að æfa á fullu fyrir jólaskemmtunina okkar.
Okkur langar að biðja ykkur um að koma með jólasveinahúfu á börnin sem þau geta notað á skemmtuninni.
MUNA BARA AÐ HAFA ÞÆR MERKTAR.
Á morgun föstudag verður svo 1. aðventustundin okkar í salnum.
Í næstu viku er svo vinavika hér á leikskólanum, þar sem deildar blandast saman. Við erum vinadeild með Lundi.
Takk kærlega fyrir góða viku
Kristjana, Danuta, Lísbet,
Kristbjörg og Hanna.
15. nóvember
Jæja, loksins koma smá fréttir, betra seint en aldrei.
Í síðustu viku áttum við listasmiðjuna og nýttum við hana mjög vel.
Í þessari viku höfum við síðan verið í hópastarfi og tónlist.
Það er smá breyting á hópastarfinu og ætlum við að prófa það fram að jólum. Það fara 2 hópar í málörvun og 2 hópar fara í fínhreyfingar.
Við erum að læra kvæði eftir Jónas Hallgrímsson,
Hefurðu séð hana systir mína og ætlum við að flytja það á degi íslenskrar tungu sem er 16. nóv.
Einnig erum við á fullu að æfa okkur fyrir
jólaskemmtunina sem verður miðvikudaginn
7. desember kl. 14.30.
Jenný Lind varð 3 ára, 13. nóvember og óskum við henni og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn.
MINNUM Á OPIÐ HÚS SEM VERÐUR
ÞANN 24. NÓV FRÁ KL. 9.00-10.30
Bestu kveðjur
Kristjana, Danuta, Hanna,
Kristbjörg og Lísbet
Vikan 31.-4. nóv
Heil og sæl.
Þessa vikuna höfum við verið að æfa okkur helling að syngja jólalögin og ganga æfingar bara vel.
Á þriðjudaginn förum við í Tónberg að hlusta á börnin á Lundi æfa sig fyrir Vökudagstónleikana.
Okkur þótti þetta alveg svakalega skemmtilegt.
Á miðvikudaginn hætti hann Skúli Hrafn hjá okkur og þökkum við honum fyrir góðar samverustundir.
Það varð að gera smá breytingar með hópana og færðum við því 2 stelpur yfir til Kristbjargar og eru núna 6 börn í öllum hópum.
Í dag (föstudag) varð Birgitta Lilja 3 ára, við óskum henni og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn J
Að sjálfsögðu var svo sungið fyrir hana í samsöng.
Takk fyrir góða viku og góða helgi.
Kristjana, Danuta, Hanna,
Kristbjörg og Lísbet
Vikan 24-28 október 2011
Heil og sæl
Af okkur er allt gott að frétta og tíminn bara flýgur áfram.
Við erum að byrja að syngja jólalögin og gengur það bara alveg ágætlega.
Við vorum í okkar skipulagða starfi í vikunni, nema á fimmtudaginn, þá var alþjóðlegi bangsadagurinn og vorum við þá bara að leika okkur með bangsana okkar og hafa gaman.
Á fimmtudaginn átti Silvía Björg afmæli og óskum við henni og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn.
Að sjálfsögðu var sungið fyrir hana í samsöng.
Takk fyrir góða viku og góða helgi.
Kristjana, Danuta, Hanna,
Kristbjörg, Lísbet og Guðrún Erla
Vikan 17-24 október
Heil og sæl.
Það hefur verið nóg að gera hjá okkur í þessari viku.
Á mánudaginn var hópastarf hjá okkur,
Á þriðjudaginn var hreyfing og vorum við í þrautabraut,
Á miðvikudaginn var tónlist, einnig fengum við litlu systir hans Þorbjörns í heimsókn og var þar mjög gaman.
Takk kærlega fyrir komuna.
Á fimmtudaginn var hópastarf.
Á fimmtudaginn átti hann Aron Snær afmæli, við óskum honum og fjölskyldunni hans til hamingju með daginn.
Í samsöng á föstudaginn vorum við með atriði og sungum við lagið:
Sjáðu hestinn minn og dönsuðum svo fugladansinn.
Einnig var sungið fyrir afmælisbarnið okkar.
Smá starfsmanna breytingar hafa orðið hjá okkur,
Lísbet er hjá okkur frá 8-10 alla daga og er að leysa Danutu af sem sinnir stuðning á þessum tíma.
Þann 27. október er alþjóðlegi bangsadagurinn og þá mega börnin mæta með BANGSA en ekki „fígúrur“.
Takk fyrir góða viku og góða helgi
Kristjana, Hanna, Danuta, Kristbjörg og Lísbet.
Vikan 10-14 október