Textarnir eru ú söngbók Vallarsels.
Söngtextar fyrir apríl:
- Hringferð ársins (1 erindið og apríl) bls 1
- Fílavísa bls. 8
- Út um mela og móa bls. 103
- Sól, sól skín á mig bls. 115
- Það er vor bls. 114
- Krummi krunkar úti bls. 55
- Góður vinur bls. 42
- Kátir voru karlar
- Vinur minn
Vinur minn
Það er skemmtilegast að leika sér þegar allir eru með.
Í stórum hóp inn um hlátrasköll geta ævintýrin skeð.
Svo vertu velkominn, nýji vinur minn.
Það er skemmtilegast að leika sér þegar allir eru með.
Það er ótrúlegt hverju lítið bros fengið getur breytt.
Getur glatt og huggað jafnvel þá sem við þekkjum ekki neitt
Svo vertu velkominn, nýji vinur minn.
Það er ótrúlegt hverju lítið bros, fengið getur breytt.
Endurtekið.......


Í heimspeki í vetur munum við vinna með lagið "Krúsilíus" eftir Önnu Pálínu og Aðalstein Ásberg, á sem fjölbreyttastan hátt.
Við munum fyrst og fremst vinna með texta lagsins og ígrunda hann og fara vel í hvað orðin þýða.
Við munum teikna mikið í þessum stundum og fara allar teikningar og brot úr umræðu barnanna á heimspekivegginn okkar frammi á gangi. Síðan munum við vinna með efni lagsins í skapandi starfi og einnig í tengslum við tónlist.
Krúsilíus
Kannastu við köttinn minn?
Hann klókur er en besta skinn.
Hann er stærri en hestur
og stærri en hús.
Já, kötturinn minn heitir
Krús – Krús – Krús-
Krúsilíus.
Hann er gulur og grænn og blár
Galdraköttur í húð og hár.
Og ég veit hvað hann syngur
og víst er það satt
að krúsilíus hann á köflóttan hatt.
Krúsilús.
Krúsilíus kynlegur er
og klórar oft í tærnar á mér.
Hann vill aldrei fisk
er með væl og pex
og segist bara vilja súkkulaðikex.
Krúsilíus.
Og ekki nennir hann að elta mýs
því alla daga vill hann rjómaís.
Hann er alltaf að stækka
en enginn það sér
því Krúsilíus býr í kollinum á mér.
Krúsilíus.