ForsíðaNemendurForeldrarUm skólann
...syngjandi glöð í leik og starfi

Einn drengur á deildinni er með ofnæmi fyrir eggjum og hnetum.  Hin börnin eru mjög dugleg að passa uppá að hann fái ekkert sem hann má ekki borða.  Þegar það var slátur í matinn spurði einn drengurinn "Eru nokkuð egg eða hnetur í slátri." 

Forsíða :: Nemendur :: Stekkur
Prenta vefsíðu

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hann Þórður Breki varð 5 ára s.l.föstudaginn 

Við óskum honum innilega til hamingju með daginn og þökkum kærlega fyrir okkur

 

 

Það eru komnar fullt af nýjum myndum úr listasmiðju inn í myndamöppuna okkar :)

Þessa viku er tannverndarvika.  Við heimsækjum tannlækni, horfum á Karíus og Baktur, syngjum lög um tennur, vinnum verkefni um tennur og fleira skemmtilegt.

Í dag sendum við heim þulu sem okkur langar til að biðja ykkur um að kenna heima.

Á mánudaginn verður rauður dagur hjá okkur á Stekk í tilefni af Degi leikskólans.  Við ætlum að fara ásamt öllum leikskólabörnum niður að stjórnsýsluhúsi og syngja saman.  Við leggjum af stað héðan kl: 9:15 og því verða allir að vera komnir fyrir þann tíma :)

Kveðja Íris. Gunna, Jónína og Gréta

 

Kæru foreldrar ;)

Nýjar fréttir koma inn á mánudaginn ásamt fullt af myndum úr listasmiðju og fleira ;)

Í næstu viku verður tannverndarvika og því ætlum við á mánudaginn að fara í  heimsókn á tannlæknastofu og hittum tannfræðin. Vvið leggjum af stað kl: 9:00 og því verða öll börn að vera komin aðeins fyrir þann tíma.  Þau börn sem borða morgunmat hjá okkur er gott ef þau eru komin til okkar kl: 8:30 svo þau hafi góðan tíma í að borða og klæða sig

Endilega yfirfarið töskurnar um helgina og passið upp á að barnið ykkar sé með nóg af hlýjum fötum til að vera úti að leika og auka föt ef þau blotna :)

Góða helgi

Íris, Gunna, Jónína og Gréta

 

 

Vikan  16 - 20 janúar.

Gleðilegan bóndadag. 

Nú í vikulok vorum við með þorrablóti þar sem við fengum þorrasmakk. Við byrjuðum inni í sal í morgun eins og alltaf á föstudögum, á samsöng.  Allir mættu með víkingahatta sem þeir bjuggu til og allir krakkarnir á Völlum mættu í lopapeysum.  Við sungum saman og meðal annars sem var sungið  þorraþræll og krummi svaf í klettagjá.

Í hádeginu var svo þorrasmakk.  Allir smökkuðu sviðasultu, liftapylsu, blíðmör, svið, hákarl og harðfisk.  Og í nónhressingu fáum við flatkökur með hangikjöti.  Það var misjafnt hvernir þeim fannst þetta en allir smökkuðu J

                                       

Fleiri myndir í albúminu okkar

Þá er allt komið á fullt hjá okkur  J

Við fórum í hreyfingu, heimspeki, tónlist, málörvun og þemavinnu í vikunni.

Í hreyfingu vorum við í stöðvavinnu.  Viljum minna foreldra að muna eftir íþróttafötum.

Í málörvun erum við að byrja á bók sem heitir Markviss málörvun.  Við erum búnar að skipta í nýja hópa en ætlum að hafa það smá opið og láta þau rúlla á milli.  Við erum að byrja að ríma og klappa atkvæði.  Þið ættuð að æfa þau heima líka J

Heimspeki ætlum við að breyta núna á vorönn.  Við ætlum að vinna hana þematengda.  Þemað okkar er FJÖLSKYLDAN MÍN OG UMHVERFIÐ MITT.  Við byrjuðum í síðustu viku á að spá í hver á heima, heima hjá mér og svo í þessari viku spáðum við í hvað er fjölskylda og hvað gerir fjölskylda.  Þetta er mjög skemmtilegt og verður gaman að vinna með.  Börninn eru mjög áhugasöm og finnst gaman að spá í fólkið sitt.  Endilega skilið blöðumum sem þið fengið heim í gær strax eftir helgi.

Við byrjuðum rólega í tónlist.  Við fórum í klapp-stapp og svo í hljóðfæraleiki.  Þeim finnst mjög gaman að fara í svoleiðis leiki.

Skemmtileg vika J

Í næstu viku eigum við listasmiðju og ætlum við að vinna þemavinnu í henn.

Takk fyrir vikuna og góða helgi

Íris, Jónína, Gunna og Gréta 

 p.s. endilega kvittið í gestabókina okkar

 

 

 

 

 

Þá er nýtt ár gengið í garð.  Gleðilegt ár kæru börn og foreldrar og takk fyrir árið sem er að líða. 

Hann Kristian Mar hætti hjá okkur um áramót en hann ásamt fjölskyldu fluttu til Noregs.  Við þökkum Kristiani fyrir samveruna og óskum honum og fjölskyldu hans góðrar ferða og velfarnar á nýjum slóðum.

Árið hefur farið rólega af stað hjá okkur en nú er allt að fara á fullt skrið.

 Við fegnum hann Snorra hundaeftirlitsmann í heimsókn til okkar ásamt labrador hundunum Mugg og Barón.  Það var mjög gaman og fróðlegt að fá þá í heimsókn.   Allir fengu síðan blað með sér heim með reglunum og hvetjum við foreldra til að ræða við börnin sín um þær.

 

Við erum að byrja á þemavinnunni okkar núna á fullu.  Við erum að vinna með fjölskylduna mína og nánasta umhverfi okkar.  Við eigum eftir að fara heim til 4 barn og verður það gert um leið og veður leyfir.  Við förum núna að skoða  hver á heima, heima hjá mér og vinnum út frá því um afa og ömmur og jafnvel frænkur og frænda. 

Okkur langar til að biðja ykkur um að hjálpa okkur í þessu verkefni. 

Í vikunni kemur blað í hólf barnanna sem okkur langar til biðja ykkur að fylla út og ræða við ykkar barn.  Eins er gott að rifja upp með barninu hvar það eigi heima og hvenær það á afmæli.

Hann Logi okkar verður 5 ára núna 19 janúar.  Hann hélt upp á afmælið sitt núna á föstudaginn.  Hann kom með piparhökuhús sem hann hafði bakað með langömmu sinn og gaf okkur það.  Við óskum honum innilega til hamingju með daginn og þökkum kærlega fyrir okkur

Í vikunni skelltu Jónína og Gunna í eitt leikrit.  Þær léku leikritið Rauðhetta og úlfurinn.  Það stóð ekki öllum á sama þegar úrlfurinn kom en allt fór vel að lokum J

      Takk fyrir vikuna Íris, Jónína, Gunna og Gréta

 

 

DESEMBER 2011

 

Kæru börn og foreldrar

Bestu óskir um

gleðileg jól og farsælt komandi ár.

Með kærri þökk fyrir skemmtileg kynni á árinu sem er að líða

Jólakveðja

 

Íris, Jónína, Gunna og Gréta

 

 

Desember mánuður er ekki hefðbundinn mánuður. Við erum búin að hafa það kósý og njóta þess.

Samt er búið að vera mikið um að vera hjá okkur.  Sævar Emil og Ágúst Óðinn héldu upp á afmælin sín 3. og 13. desmber.  Við óskum þeim innilega til hamingju með dagana sína og þökkum kærlega fyrir okkur.

                     

Alla föstudaga höfum við verið með jólasamveru inn í sal með öllum í Vallarseli.  Þar komum við saman, kvekjum á aðventukerti og syngjum saman.  Í aðventustun þann 9. desember kom séra Eðvard og Sveinn Arnar orgerleikari í heimsókn til okkar og voru með jólahugvekju fyrir okkar inn í sal.  Við þökkum þeim kærlega fyrir samveruna.

Jólaskemmtuninn okkar var þann 9. desember og tókst hún svakalega vel.  Við þökkum öllum sem komu og nutu þess að vera með okkur og fá sér smákökur og kaffi.

Þann 15 desember var okkuð boðið á jólasamsöng hjá Grundaskóla.  Við fórum þangað og var það mjög gaman. 

Hér í Vallarseli var svo jólaball og jólamatur þann 16 des.  Einnig var þennan dag rauður dagur hjá okkur.  Við fengum hann Skyrgám í heimsókn til okkar ásamt nokkru minni „jólasveinum „úr Grundaskóla.  Hann Skyrgámur kom með gjafir handa öllum, svakalega spennandi.

                              

Við breyttum líka út af vananum og skelltum okkur í vöfflukaffi og pylsupartý heim til Írisar s.l. þriðjudag.  Við löbbuðum í snjó og smá hríð fram og til baka J  Lékum okkur, boðuðum vöfflur, horfðum á Línu langsokk halda jól og fengum okkur svo pylsur.  Lékum aðeins meira og löbbuðum svo til baka í leikskólann.  Frábær dagur og skemmtileg tilbreyting fyrir alla.

 ÞAÐ ER FULLT AF FLEIRI MYNDUM INN Í ALBÚMINU OKKAR :)

                           

 

Vikan 28 nóvember – 2 desember

Þessi vika hefur verið ótrúlega fljót að líða.  Við erum á fullu í jólaundirbúningi og gengur hann mjög vel.   Vikan var vinavika í leikskólanum og var Skarð vinir okkar þessa viku.  Við fórum í heimsókn inn á Skarð í 3 litlum hópum og þau af Skarði komu til okkar.  Það var mjög gaman. 

Á þriðjudaginn fórum við að sjá leiksýningu í boði foreldrafélagsins.  Leikritið heitir Strákurinn sem týndi jólunum.  Það var um strák sem hafði gleymt hinum sanna jólaanda og hlakkaði ekkert til jólanna, fannst bara sjálfsagt að fá tuttugu og fimm jólapakka. En með hjálp góðra vina fann hann aftur gleðina í hjarta sínu og fylltist tilhlökkun komu jólanna. Góður boðskapur þar á ferð. Þetta var mjög skemmtilegt leikrit og skemmtum við okkur mjög vel.

Við bökuðum súkkulaðibitakökur eftir hádegi þriðjudaginn sem við ætlum að bjóða ykkur, foreldrum, ömmum, öfum og þeim sem koma á jólasýninguna okkar sem verður    FÖSTUDAGINN 9. DESEMBER KL: 15:00.  Hlökkum til að sjá sem flesta.  Við erum á fullu að æfa fyrir sýninguna sem verður glæsileg, að sjálfsögðu J

Snjórinn kom og kætti okkur mikið J  Við erum búin að leika mikið í snjónum síðustu daga.  Við viljum minna ykkur á að börnin verða að hafa hlýjan fatnað til að leika í snjónum.  Húfur sem hlífa eyrum, hlýja vettlinga ekki þunna hanska, þykka peysu undir gallan og ullarsokka. 

 

Hann Sævar Emil hélt upp á 4 ára afmælið sitt.  við óskum honum innilega til hamingju með daginn og þökkum kærlega fyrir okkur.

Hefðbundið hópastarf fellur niður núna í desember.  Við ætlum að leggja áherslu á rólegheit, söng, föndur og kósý J

Hlökkum til að sá ykkur á föstudaginn kl: 15:00

Kveðja Íris, Gunna, Jónína og Gréta

 

Vikan 21.-25. nóvember.

Við þökkum öllum sem komu á Opið hús fyrir komuna og áttu með okkur skemmtilega- og notalega stund við jólaföndur.

Afraksturinn, sveinkarnir sem nú prýða Stekk eru alveg hreint frábærir.

Fleiri myndir inn í albúminu okkar undir opið hús Stekkur ;)

 Í næstu viku er vinavika í Vallarseli bæði meðal barnanna og starfsmannahópsins. Hefðbundið hópastarf fellur niður þessa viku, en við höfum tónlistarstund á þriðjudaginn kl.13:00. Einnig verður leiksýning á þriðjudaginn í boði foreldrafélagsins þar sem sýnt verður leikritið strákurinn sem týndi jólunum.

Stekkur og Skarð verða vinadeildir og munu hittast á miðvikudaginn í salnun kl. 9:15  og gera e.h. óvænt og skemmtilegt saman :)

Á mánud, þri. og fim fer einn hópur af hvorri deild í heimsókn á vinadeildina ásamt starfsmanni og tekur þátt í leik og starfi þar frá kl. c.a. 9:00-10:30.

Á föstudag verður svo Aðventustund í salnum þar sem allar deildir leikskólans hittast og syngja saman jólalög.

Hann Óskar Sindri á afmæli á morgun en hélt upp á það í leikskólanum í dag.  Við óskum honum innilega til hamingju með daginn og þökkum kærlega fyrir okkur.

Við þökkum fyrir vikuna og óskum ykkur góðrar helgar. Minnum ykkur jafnframt á að dagartalið fyrir desember er komið upp og gott að skoða og fylgjast með því :)

Kveðja Íris, Jónína, Gunna og Gréta

 

 

 

Nýjar fréttir :)

Við höfum ekki sett nýtt inn á heimasíðuna okkar síðustu tvær vikur en nú verður bætt úr því.

Næstkomandi fimmtudag 24 nóvembar er OPIÐ HÚS hér hjá okkur í Vallarseli.  Þá er foreldrum eða ömmum og öfum eða frænkum boðið að koma og föndra með barninu ykkar.  Við verðum inn á okkar deild að föndra saman.   Við verðum að förndra á milli 9:00 - 10:30.

Fimmtudaginn 8 desember kl: 13:30 verður jólaskemmtun Stekks.  Þá verða börnin með tónleika i salnum og á eftir verður boðið upp á smákökur sem við bökum, kaffi og mjólk inn á deild.

ENDILEGA TAKIÐ ÞESSAR DAGSETNINGAR FRÁ :)

og endilega fylgist með dagatalinu okkar sem hangir á hurðinni okkar en þar skrifum við allt sem um er að vera hjá okkur, alla viðburgði.

Við erum á fullu í þemavinnu og nú eigum við eftir að heimsækja aðeins 4 heimili.  Við erum byrjuð að setja myndir og hús á kortið okkar af Akranesi inn á deild þar sem við merkjum við hvar hver á heima.  Börnin eru mjög spenn yfir þessu og spá mikið í hvar hver á heima og hvað það sé langt á milli þeirra.  Endilega skoðið veggin okkar ;)

Kveðja Íris, Jónína, Gunna og Gréta

 

Vikan 31. okt - 4 nóv

Þá flýgur enn ein vikan frá okkur og núna eru 7 vikur til jóla J

Þessi vika hefur verið mjög viðburgðarík hjá okkur. 

Núna í vikunni fegnum við það hlutverk að velja hvað ætti að vera í matinn á leikskólanum 18. nóvember n.k. það fór fram kosning og niðurstaðan var sú að það verður kjúklingur, franskar og koktelsósa í matinn þennan dag.  Okkur hlakkar mikið til að borða þennan dag :)

Við erum búin að eiga listasmiðjuna þessa vik u og höfum við nýtt hana mjög vel.  Við erum búin að gera ydd myndir, vinna með gifs, vinna með veggfóðurslím og dagblöð, búin að mála og vatnslita og aðeins klippt.  Útkoman er hin glæsilegasta og krakkarnir mjög dugleg að vinna.  Þegar listasmiðjan er okkar setjum við allt  annað hópastarf  að mestu til hliðar.

 

 

 

Á mánudaginn fóru við í hreyfingu.  Jónína og Drífa sáu um hreyfingu að þessu sinni en Gunna var að vinna í listasmiðjunni.  Þær voru með alls konar hlaupaæfingar, hopp og þrautir.  Síðan enduðu þær á því að fara í ásadans.  Gekk þetta mjög vel.

Á þriðjudaginn var okkur boðið á tónleika hjá krökkunum á Lundi en þau tóku þátt í dagskrá vökudaga sem nú fara fram.  Það var generalprufa hjá þeim á þriðjudaginn og fórum við á horfa á.  Tónleikarnir foru mjög glæsilegir og þökkum við vinum okkar á Lundi kærlega fyrir okkur.  Þetta var alveg glæsilegt hjá þeim.  Á næsta ári munum við svo halda svona tónleika. 

                                                                                                                                Á miðvikudaginn var okkur boðið í heimsókna á Bókasafn Akraness.  Venja er að bókasafnið býður 5 ára börnunum að koma til sín en vegna anna hjá krökkunum á Lundi var okkur á Stekk og jafnöldrum okkar á Hnúk að koma í staðinn.  Ásta og Nanna tóku á móti okkur og fóru með okkur í gegnum reglurnar á bókasafninu.  Nokkri höfðu komið á bókasafnið með mömmu eða pabba en mjög margir höfðu aldrei komið þangað.  Ásta las fyrir okkur sögu um strák sem hét Hlyn sem hafði týnt bangsanum sínum.  Stór björn hafði fundið hann en týnt sínum.  Loks fundust báðir bangsarnir og bæði strákurinn og björnin urðu glaðir.  Síðan læddumst við að skoða bangsasýningu sem er á bókasafninu í tilefni af  alþjólega bangsadeginum sem var 27. október s.l.  Að lokum fengum við að skoða bækur sjálf.  Þetta var mjög skemmtileg ferð.  Á leiðinni til baka í leikskólann komum við, við á ljósmyndasýningunni okkar sem er í Tónbergi og mun vera þar á meðan vökudagar eru.            

 

 

Á fimmtudaginn fórum við í tónlist fyrst hópur 1 og síðan kom hópur 2 inn í tíman til okkar og æfðum við okkur í að spila öll saman.  Krakkarnir eru orðin rosalega flínk í að spila á hljóðfæri og er það alveg sama hvaða hljóðfæri það er.  Við héldum svo áfram að vinna í listasmiðjunni og munum klára þá vinnu í dag, föstudag.

Við biðjum ykkur foreldrar að vera duglega að lesa fyrir ykkar barn heima.  Með því að lesa heima á hverjum degi eflið þið málþroska og orðaforða barna ykkar.

KÆRU FORELDRAR.  ÞIÐ VERÐIÐ AÐ YFIRFARA TÖSKUR BARNA YKKAR.  ÞAÐ VERÐA AÐ VERA AUKAFÖT Í TÖSKUNNI ÞVÍ BÖRNINN BLOTNA MJÖG OFT ÚTI.

Góða helgi

Íris, Gunna, Jónína og Gréta

 

 

 

Vikan 24-28 október

Á mánudaginn átti hann Snorri Már 4jra ára afmæli og á miðvikudaginn átti Mikael Ívan líka 4jra ára afmæli.  Við óskum þeim innilega til hamingju með dagana sína og þökkum kærlega fyrir okkur.

Vikan hefur gengið vel.  Við fórum í allar stundir eins og vera ber. 

Á fimmtudaginn var alþjóðlegi bangsadagurinn og þann dag máttu börnin koma með bangsann sinn í leikskólann. Alls kyns furðudýr mættu á Stekk þennan dag og tóku þátt í leik og samveru með eigendum sínum :)

Á fimmtudag byrjaði ljósmyndasýning Vallarsels í Tónbergi í tilefni Vökudaga. Á sýningunni eru myndir eftir börn fædd 2007 af umhverfi þeirra, séð með þeirra augum. Við hvetjum foreldra til að gera sér ferð í Tónberg og skoða sýninguna.

En í dag föstudag fórum við í okkar fyrstu þemagönguferð.  Það var svakalega mikið gengið og eru börnin mjög þreytt í dag.  Við fórum að skoða hvar 6 strákar áttu heima en við erum eins og þið vitið að vinna með þemað heimilið mitt og umhverið okkar.

Við fórum og skoðuðum hús Mikaels Ívans, Davíð Aronar, Keeghan Freyrs, Dawids, Daníels Bergmanns og Óskars Sindra.  Þannið að það var gengið langt.  Þessir strákar eiga heima niður í bæ og var því labbað alla leið niðru að bíóhöll og til baka í leikskólan aftur :) 

Við vorum í 2 tíma á göngu.  Allir voru svakalega duglegir að ganga en eins og ég sagði voru mjög margir þreyttir.

Við erum að vinna í þema með heimilið mitt og hver er ég.   Gott er ef þið mundið ræða við ykkar barn hvar það eigi heima og hver afmælisdagurinn þeirra er.  Eins mælum við með því að lesið sé fyrir barnið heima á hverjum degi en það eflir orðaforða og orðaskiling barna.

Takk fyrir vikuna og góða helgi

                            Íris, Jónína, Gunna og Gréta

 

Vikan 17 - 21 október

Enn flýgur vika frá okkur.  Tímin er svo fljótur að liða að áður en við vitum af eru komin jól.

Hún Sara Ósk átti 4jra ára afmæli 16. október og hélt hún upp á það í leikskólanum á þriðjudaginn.  Við óskum henni  innilega til hamingju með daginn og þökkum kærlega fyrir okkur

Við erum búin að vera dugleg í þessari viku eins og alltaf .  Við erum búin að fara í hreyfingu, tónlist, málörvun, heimspeki, val, frjálsan leik og út í þessari viku eins og alltaf ;) 

Í Hreyfingu voru styrktar æfingar.  Gekk það misjafnlega en skemmtilegar voru þær.

Fleiri myndir í albúminu okkar undir vikan 17-21 okt.                

Í málörvun erum við að vinna með að klappa atkvæði og notum við nöfnin okkar í það.  Við erum líka að telja atkvæðin og gerum við það með kubbum.  Þetta gengur mis vel  en er allt að koma.  

Í tónlist erum við að æfa epli, epli og erum við núna að fara að útfæra það frekar.  Foreldrar fá svo að sjá afrakturinn af þessari vinnu á jólaskemmtuninni sem verður í byrjun desember.

Við fórum öll saman í heimspeki í þessari viku.  Við vorum að rifja upp hvað við vissum núna um hann Krúsilíus og síðan teiknuðum við aðra mynd af Krúsilíusi og hanga þær nú báðar uppi á heimspekiveggnum okkar.  Endilega skoðið þið myndir ykkar barna og spjallið við þau um hvað sé á myndinni.  

Við förum út á hverjum degi alveg sama hvernig viðrar.  Við förum út í rigningu, í roki, í snjó og í frosti.  Þess vegna verða börnin ykkar að vera með viðeigandi klæðnað til að geta verið út.  Eins þurfa þau að hafa í töskunni sinn auka föt því þegar mikið er að gera úti blotnum börnin oft og því miður eigum við ekki auka föt.

                   

Kveðja Íris, Gunna, Jónína og Gréta

Vikan 10 – 14 október

Við þökkum þeim foreldrum sem sáu sér fært að mæta í foreldraviðtölin, en svona viðtöl eru án efa mjög góð til að efla enn frekar samskipti heimilis og skóla J   

Vikan hefur gengið vel og alveg samkvæmt áætlun. Á mánudag var hreyfing, þriðjudaginn málörvun.  Á miðvikudaginn féll því miður niður heimspeki vegna óviðráðanlegra orsaka.  Við vinnum það upp.  Á fimmtudaginn var tónlist og í dag föstudag vorum við að leika inni í sal.  Þannig að það er allt á áætlun J 

                               

Í hreyfingu var þrautabraut og eru þau orðin rosalega flínk í að fylgja hringnum og fara eftir fyrirmælum.

Í málörvun er Jónína núna að vinna með myndir þar sem þau draga mynd og segja frá henni, þau eru að læra þuluna með ÚEN DÚEN DÍ. 

Í tónlist byrjum við alltaf á klapp-stappi síðan vinnum við með þuluna okkar og í lokin völdum þau sé hljóðfæri, sögðu okkur hvað það hét og leyfði okkur að heyra í því.  Þegar allir voru búnir að velja spiluðum við saman við júróvision lagið ALEXANDER RYBAK  Fairytale .  Það var rosalega gaman.

 

Í samsöng í dag var Lundur með uppákomu.  Þau sýndu okkur tvö lög af dagskránni sem þau verða með á Vökudögum.  Rosalega flott og ferður sýninginn örugglega frábær hjá þem J  Takk Lundur fyrir skemmtunina.

 

Við ætlum í næstu viku að byrja á þemavinnu um heimilið okkar.  Við förum í heimsókn heim til allra það er að segja við löbbum að húsi hvers barns og tökum mynd af barninu við útidyrnar sínar.  Við verum í þessu næstu vikur.

      

Takk fyrir vikuna og góða helgi.

Kveðja Íris, Jónína, Gunna og Gréta

 

Vikan 3 – 7 október.

 

Þessi vika hefur verið hefðbundin hjá okkur að mestu leyti.  Allt nema heimspeki hefur verið á sínum stað.  Heimspeki fell niður vegna veikinda. 

Foreldraviðtöl ganga vel og er Íris að verða búin að hitta alla foreldra. 

Í hreyfingu vorum við að leika með fallhlífina.  Það var svakalega gaman.

 

Í málörvun byrjaði Jónína aðeins á að ríma.  Það gekk bara ágætlega.  Þetta er náttúrulega bara að lærast J 

Í tónlist erum við að æfa epli....... og erum núna farin að bæta við hljóðfærum.  Krakkarnir eru rosalega flínk að halda takti.  Við tókum svo hljóðfæraleik í lokin en þá völdu þau sér hljóðfæri til að spila á og svo spiluðu þau með Pöpunum og Íris sýndi myndir þegar þeirra hljóðfæri átti að spila.  Mjög skemmtilegt.

 

Í dag föstudag var svo BLEIKUR DAGUR.  Það var mjög gaman hvað allir á Stekk tóku þátt í bleika deginum.   Hnúkur var með uppákomu á samsöng og var það mjög flott hjá þeim. 

Takk Hnúkur fyrir skemmtunina.

 

                                 

 

 

Í tilefni alþjóðlega skólamjólkurdagsins 28. sept. s.l. fengum við senda "skólamjólk" í 1/4 líters fernum fyrir alla nemendur leikskólans.  Á Íslandi er haldið upp á daginn undir kjörorðunum "Holl mjólk og heilbrigðir krakkar".  Með deginum vill fræðslunefnd mjólkuriðnaðarins vekja athygli barna, foreldra og starfsfólks á mikilvægi mjólkur í daglegu fæði barna.  Það fannst öllum mikil "sport" að drekka mjólk úr fernu með röri í hádegismatnum þennan dag.  Síðan skoluðum við fernurnar og ætlum að föndra með þær við tækifæri. 

                                 

Þeir foreldrar sem ekki eru búin að hitta Írisi endilega setjið ykkur í samband við hana og finnum tíma til að spjalla..

Takk fyrir vikuna og góða helgi.

Íris, Jónína, Gunna og Gréta

 

 

 

Vikan  26 – 30 september

Nú er liðin ein vikan enn.  Tíminn líður svakalega hratt og brátt verða komin jól J  Vikan hefur gengið vel og allt verið á sínum stað.  Á mánudaginn var farið í hreyfingu og var Gunna með þrautabraut.

  

Á þriðjudaginn fór Jónína í málörvun og að þessu sinni fórum við í gátur, vísbendinga gátur t.d. Ég á heima í sjó, þú borðar mig.  Hver er ég?   Og börnin áttu að finna út hver ég var.  Svo fórum við í lýsa mynd.  Þá áttu þau að lýsa því sem er á myndinni og segja hvað væri á henni.  Og svo fórum við aðeins að ríma.  Gekk þetta ágætlega, við þurfum að æfa okkur meira J

Á miðvikudaginn var heimspeki með Írisi.  Við hlustuðum á lagið og svo lituðum við mynd af Krúsilíusi sem hanga núna upp á heimspekiveggnum okkar ásamt umræðum sem fóru fram.  Endilega skoðið þetta og spjallið við ykkar börn hvað þau hafa verið að gera.

                                     

 

Á fimmtudaginn var tónlist með Írisi og Gunnu.  Við erum að æfa takt og rytma og eru börnin svakalega dugleg í því.  Svo var tekið klapp- stapp svo fórum við í hljóðfæraleik þar sem einn var stjórnandi og þegar hann steig inn í hringinn átti þau hljóðfæri sem voru í þeim hring að spila.  Mjög gaman og börnin mjög dugleg að bæði stjórna og spila.  Að lokum fórum við í klukkudans.

                                  

Í dag föstudag vorum við með uppákomu í samsöng.  Fyrst sungum við saman Góðan dag fyrir alla og svo sýndu 4 börn leikrit fyrir alla.  Leikritið sem við sýndum var Geiturnar þrjár.  Þetta var rosalega flott hjá þeim og gekk mjög vel J  Þetta eru duglegir krakkar að koma fram.

 

 

 

 

Í næstu viku verða foreldraviðtöl. Margir eru búnir að velja sér tíma en þeir sem eru ekki búnir endilega skrifa sig á. 

Minnum einnig á að fara yfir töskur barna ykkar reglulega.  Sérstaklega núna þegar það er svona blautt.

Fleiri myndir inn í myndamöppunni okkar :)  

Endilega kvittið í gestabókina okkar.

Góða helgi

Íris, Jónína, Gunna og Gréta.

 

 

Vikan 19 -23 september

Þessa viku höfum við átt listasmiðjuna.  Þegar við eigum hana hliðrum við dagskipulaginu til og rúllum alla dagana í listasmiðjuna.  Það er búið að vinna haustverk, sjálfsmynd, tröll í listasmiðjuna og hægt er að skoða listaverkinn inn á deild en við hengjum þau upp í dag og strax eftir helgi.

    
                                                                                                       Við fórum á miðvikudaginn í göngutúr til að vinna Vökudagaverkefni og vinna umferðarverkefni líka en í þessari og hluta af næstu er umferðavika hjá okkur.  Við förum með hana inn í næstu viku því við áttum listasmiðjuna.

Einnig unnum við Vökudagaverkefnið okkar en við verðum með ljósmyndasýningu á vökudögum sem verða í lok október, byrjun nóvember.  Ljósmyndasýninginn verður að vanda í Tónlistarskóla Akranes.  Þegar nær dregur verður þetta auglýst.

Dagskipulagið fékk aðeins að vikja þessa viku en fórum við í hreyfingu og í tónlist.  Í hreyfingu vorum við í slæðuleik og æfðum um leið hugtökin upp og niður, hratt og hægt. Fórum svo í boltaleiki og enduðum á slökun.  Í tónlist erum við að vinna með þuluna sem við lærðum um daginn sem er svona:   

Epli, epli, appelsína, banani.

Epli, epli, appelsína, ber.

Núna bættum við stöfum inn í þuluna og gekk það mjög vel eins æfðum við klapp-stapp eins og við gerum alltaf.

Í dag föstudag vorum við að vinna fínhreyfingarverkefni tengd umferðinni og erum við búin að hengja þær myndir upp við hurðina inn á deild, endilega skoðið.

Við erum að æfa okkur í að hlusta á konur og fara eftir einföldum fyrirmælum þessa dagana.  Eins erum við að æfa okkur í að vera góð hvert við annað og vera í fallegum leikjum.  Þetta er farið að ganga vel núna og í tilefni þess fengum við verðlaun í dag sem var að horfa á mynd.  Við horfðum á Dýrinn í Hálsaskógi :)

 

 

Fullt af myndum úr listasmiðju í myndamöppunni okkar          

Takk fyrir vikuna og góða helgi

Íris,  Jónína, Gunna og Gréta.

 

Vikan  12. – 16. september

Á föstudaginn í samsöng voru nokkrir frá okkur sem spiluðu undir söng hjá okkur.  Var það mjög flott hjá þeim.

 

Á mánudaginn átti Kristían Mar 4 ára afmæli.  Við óskum honum innilega til hamingju með daginn og þökkum kærlega fyrir okkur.

                                                                                                                  Við fórum í hreyfingu á mánudaginn.  Það var mikið fjör.  Við fórum í þrautabraut.

Á þriðjudaginn fórum við í málörvun hjá Jónínu.  Við vorum að lýsa myndum sem á voru myndir með athöfnum.  Gekk þetta mjög vel.

                                                                                                                     Eftir hádegi fórum við í þemavinnu.  Við fórum í ferð niður að Langasandi og týndum  2 grjót.  Annað á að vera búkur og hitt höfuð. Úr þessu ætlum við að vinna með í listasmiðju sem við eigum næstu viku (19-23 sept.)  Það eru myndir inn á síðunni okkar frá þessari ferð.

Á miðvikudaginn fórum við í heimspeki.  Við vorum að byrja á nýju lagi en það er lagið um hann Krúsilíus.  Skemmtilegt lag en textin af því er undir heimspeki hér á siðunni okkar.  Við hlustuðum á lagið og ræddum aðeins hvað það væri að segja okkur.   Á stóra veggnum á ganginum hjá okkur er Heimspekiveggur.  Þar hengjum við upp skráningarna úr tímunum og eins eru núna myndir sem þau teiknuðu af Krúsilíus eftir að hafa hlustað á lagið.  Svakalega flottar myndir.  Endilega skoðið og fylgist með veggnum okkar J

                                                               

Á fimmtudaginn féll tónlist hjá okkur niður vegna funda.  Við fórum út og vorum mikið úti. 

Á föstudaginn  fórum við aftur á móti í tónlist.  Við erum að vinna með klapp-stapp og einnig erum við að vinna með þuluna sem við lærðum í síðustu viku um ávextina.

Við erum byrjuð með val og gengur það vel. 

                 

Við byrjuðum líka á Stig af stigi í þessari viku.  Fyrsti tíminn fór í að kynna fyrir þeim hvað við erum að fara að gera.  Þetta fannst þeim afar spennandi.

Vikuna 19 – 23 september verðum við með listasmiðj una.  Við nýtum hana vel og annað starf víkur að einhverju leiti til að nýta listasmiðjuna sem allra best.  Munið að hafa þau í leikskólafötum þar sem við erum að vinna með lím, málingu og fleira.

 Endilega kvittið í gestabókina okkar ;)

Kveðja

Íris, Jónína, Gunna, Gréta og Drífa

 

 

 

 

Vikan 5 – 9 september

Þá er allt komið á fullt hjá okkur og vetrastarfið fer vel af stað J

Við gáfum okkur og börnunum góðan tíma til að kynnast.  Okkur finnst það hafa gegnið vel.

Við fórum á mánudaginn í hreyfingu.  Það gekk mjög vel og var mjög gaman í tímanum.  Gunna sér um hreyfinguna. 

 

               

Eins og við töluðum um á foreldrafundinum þá óskum við eftir því að allir komi með íþróttaföt í sér tösku.  Við ætlum að æfa okkur í að klæða okkur í og úr fyrir hreyfingartíma.

 

Á þriðjudögum verður málörvun.  Jónína sér um málörvun og féll tíminn niður því að Jónína var í útlöndum. 

 

Á miðvikudögum er heimspeki.  Íris sér um heimspeki í vetur.  Í tímanum rifjuðum við upp lagið sem þau voru að vinna með í fyrra það er að segja Háttatíma á himinn.  Það var gaman að fara í heimspeki með krökkunum í vetur því þau hafa mjög frjótt ímyndunarafl.

 

Á fimmtudögum er tónlist.  Þessi hópur er mjög dugleg í tónlist og eru fljót að læra.  Við lærðum þulu í tímanum og er hún svona:

Epli, epli, appelsína, banani.                                                           

Epli, epli, appelsína, ber.

Með þessa vísu ætlum við að vinna í vetur.

Spennandi að sjá hvernig það kemur út J

 

                       

 

Í dag föstudag fórum við í göngutúr upp á Garðasel.  Þar lékum við okkur í garðinum og það er alltaf gaman að fara í heimsókn og prófa eitthvað nýtt.

 

Eins og við Arna deildastjóri á Hnúk töluðum um á foreldrafundinum sem var s.l. þriðjudag erum við að „skera niður þjónustu“ það er að segja nú þurfa börnin að fara að gera meira sjálf.  Því óskum við eftir að þið setjið í hólf barnsins það sem heppilegt er að fara í út.  T.d. ef það er rigning að pollagallin hangi í hólfinu ásamt hlýrri peysu, húfu og vettlingum.

Við förum út á hverjum degi og stundum 2x á dag. 

Eins verða alltaf að vera með fatnað samkvæmt veðri.  Húfa og vettlingar eru til dæmis nauðsynlegt núna í kuldanum.

Takk fyrir vikuna og góða helgi

Kveðja Íris, Jónína, Gunna og Gréta

 

 

 

 

 

 

 

Hún Ísabella á afmæli í dag 29. ágúst.  Við óskum henni innilega til hamingju með daginn og þökkum henni kærlega fyrir okkur.

 

 

 

Arnar og Eros urðu 4 ára 25. ágúst.  Við óskum þeim innilega til hamingju með daginn og þökkum kærlega fyrir okkur.

 

 

Hann Máni Berg varð 4 ára 9. ágúst. Hann hélt upp á afmælið sitt í dag.  Við óskum honum honum innilega til hamingju með daginn og þökkum kærlega fyrir okkur. 

 

 

 

                                    

 

Almar Frosti og Amelía Rán héldu upp á 4 ára afmælið sín í dag, 15 ágúst.  Við óskum þeim til hamingju með daginn og þökkum kærlega fyrir okkur J

 

 

 
Vallarsel | Skarðsbraut 6 | 300 Akranes | Sími: 433-1220 | vallarsel@akranes.is