Tónlist með yngstu börnunum
Kennt er í gegnum leikinn, þannig að börnin eru ekki endilega meðvituð um að það sé verið að kenna ákveðna hluti, í stað þess upplifa þau skemmtilega tónlistarstund. Reynt er að virkja sérhvern einstakling þannig að allir fái sem mest út úr hverri kennslustund.
Lykilorðin í tónlistinni eru: fjölbreytni, gleði og gaman.
•Við byggjum tónlistartíma upp á þann hátt að við byrjum á söng, síðan er unnið með hljóðfæri og síðan endum við á leik sem m.a. byggist á hreyfingu, hlustun, takti, o.frv. Þegar við byrjum að leggja inn hljóðfæravinnu er byrjað á því einfalda, eggjum, stöfum og trommum.
•Við leggjum mikla áherslu á að allir séu þátttakendur, börn og starfsfólk.
Hægt er að kaupa glænýja söngbók leikskólans á 1500 krónur!
Söngtextar sem við erum að syngja. Flesta texta má finna í nýju söngbókinni okkar.
Hringferð ársins bls: 1.
Ég er rauður héri bls: 81.
Fiskarnir tveir bls: 83.
Litirnir bls: 71.
Tombai bls: 83.
Tröllalagið bls: 64.
Við erum vinir bls: 73.
Höfuð, herðar,hné bls: 133.
Nafnalag(nú skulum við) bls:131.
Nafnalag(við réttum...)
Gjugg í bú bls:22.
Fimm litlar endur.....
A ram sa sa bls:95.
Við lemjum ekki neinn bls:95.
Alla föstudaga er samsöngur kl 9 :)