ForsíðaNemendurForeldrarUm skólann
...syngjandi glöð í leik og starfi

Það var verið að gefa súrmjólk í morgunmat og eitt barnið vildi fá meira.  Kona hellir meiri súrmjólk í diskinn hjá því sem galar hátt: "líka meiri sykurpúða" 

Forsíða :: Nemendur :: Skarð :: Fréttir
Prenta vefsíðu

Velkomin á heimasíðuna okkar!

 

Vikan 7.-11. maí

 

Þessi vika var nýtt til æfinga fyrir vorhátíðina sem er í dag.

Á mánudag tókum við æfingu og fórum 2x út að leika í góða veðrinu.

Á þriðjudaginn var svo hópastarf og útivera.

 Á miðvikudaginn fórum við svo í sveitaferð að miðfelli og sáum kindur, lömb, hest, hunda, beljur, naut og kálfa. Allir fengu pulsur og svala og allir náðu að vaka í rútunni en voru samt ansi þreytuleg eftir heilmikla útiveru og göngutúra í sveitinni.

Á fimmtudaginn fórum við á generalprufu hjá Stekk og svo sýndum við þeim okkar sýningu strax á eftir.

Í dag föstudag var svo samsöngur og útivera og allir voru snöggir að sofna eftir viðburðarríka viku. Svo er vorhátíðin okkar í dag kl 14:30.

Góða helgi

 

 

Vikan 30. apríl- 4. maí

 

Þessi vika er aldeilis búin að líða hratt þar sem það var frí á þriðjudeginum.

Á mánudaginn æfðum við okkur fyrir vorhátíðina sem verður föstudaginn 11. maí kl 14:30. Við erum loksins farin að geta verið lengi úti að leika sem okkur finnst æðislegt. Förum 2x út :) Einnig hélt Marta Sóley upp á afmælið sitt og bauð hún upp á ís í tilefni dagsins.  

Á miðvikudaginn var svo aftur æfing fyrir vorhátíðina, endilega syngja með börnunum heima og hvetja þau til að syngja hátt og snjallt, vantar enn smá upp á þátttökuna hjá þeim á æfingum og erum við búnar að ítreka fyrir þeim að þið séuð að koma og sjá og hlusta á þau en ekki konurnar :)

Á fimmtudaginn var frjáls leikur og útiverur.

Í dag var svo samsöngur í salnum, leikur og útivera.

 

Næsta miðvikudag förum við í sveitaferð. Fylgjast með á töflunni og á viðburðardagatalinu þegar nær dregur.

 

Góða helgi.

 

Vikan 23.-27. apríl

 

Þessi vika var ansi annasöm hjá okkur.

Við erum í smá hvíld frá hreyfingu í salnum þar sem að við nýtum salinn til æfinga fyrir vorhátíðina.

Einnig höfum við verið að nota veðrið og fara 2x á dag í útiveru sem er bara æðislegt.

Á miðvikudaginn bættist ný stelpa í flotta hópinn okkar en hún heitir Ása Brynja og kemur frá Akureyri og bjóðum við hana hjartanlega velkomna.

Í dag fimmtudag fórum við í gönguferð til Sigurðar, pabba Birgittu Lilju á Völlum, að skoða hænurnar hans og fengum við djús og kex áður en við gengum til baka, svaka gaman og myndir komnar á síðuna okkar.

 Á morgun föstudag er svo samsöngur í salnum.

 

Vikan 10.-13. apríl

 

Þessi vika var í styttra lagi (4 dagar) og byrjuðum við á því að fara í tónlist.

Á fimmtudag vorum við svo að gróðursetja blóm og skreyttum vasann okkar.

Á föstudeginum var samsöngur og útivera og leikið.

Góða helgi.

 

Vikan 26.-30. mars

 

Þessa vikuna datt allt skipulagt starf út fyrst að við vorum alla dagana í listasmiðjunni að föndra og mála.

Allir fara með skrautið sitt heim á miðvikudaginn.

 Við fórum alla daga nema á mánudag út að leika og voru flestir vel blautir og skítugir.

 Í dag var svo samsöngur inni í sal.

Eigið góða helgi.

 

Vikan 19.-23. mars

 

Þessi vika byrjaði á leikfimi í salnum og héldum við áfram að vera með boltaæfingar og hlustuðum á tónlist og hreyfilög.

Allir voru mjög duglegir að fara í íþróttafötin sín.

Á þriðjudaginn var svo könnunarleikur með Sigrúnu.

 Á miðvikudaginn var svo tónlist með Sigrúnu og Gunnhildi. Indíana átti 3 ára afmæli og bauð upp á afmælisköku :) (myndir komnar inn).

 Á fimmtudaginn var svo einingakubbaleikur með Sigrúnu og gekk það mjög vel.

Í dag, föstudag var svo samsöngur í salnum, frjáls leikur og ís í eftirrétt eftir kjúklingaveisluna ;)

 Við vorum svaka dugleg úti að leika og fórum alla dagana út.

 Takk fyrir góð viðtöl í þessari og seinustu viku.

 Hafið það gott um helgina :)

 

 

Vikan 12.-16. mars

 

Við byrjuðum vikuna á því að fara í hreyfingu og lékum okkur með bolta. Fórum svo út að leika.

Á þriðjudaginn var könnunarleikur og útivera.

 Á miðvikudaginn fóru allir saman í tónlist að syngja og í nýjan músa leik sem var rosa skemmtilegur og út að leika.

 Á fimmtudaginn var svo einingakubbaleikur sem allir prófuðu að fara í og svo fóru allir út að leika í æðislegu veðri og svo aftur eftir svefninn.

 Á föstudaginn fórum við í samsöng og svo út að leika.

Allir hressir og kátir.

Góða helgi :)

 

 

Vikan 5.-9. mars

 

Jæja þessi vika hófst á frjálsum leik og morgunmat. Allir fóru í stuttbuxur og í leikfimi, en þar lékum við okkur með fallhlífina og svo með bolta. Allir fóru út að leika.

Á þriðjudaginn var svo hópastarf og hægt að sjá í fataklefanum hvað hver hópur var að bralla. Og svo var útivera.

Á miðvikudaginn var síðan tónlist og fóru allir saman í tónlist, fengu svo ávexti og svo út að leika.

Á fimmtudeginum var könnunarleikur með Gunnhildi og svo fóru allir út að leika í snjónum, rosa dugleg.

 Í dag föstudag var ekki samsöngur en við lékum okkur með bíla og kalla, lékum með dúkkur og föt. Við fórum ekki út í dag en höfðum í staðinn kósý-dag og horfðum á stubbana og fengum popp og epli. Svo var lasagne í matinn. Allir lögðu sig svo lékum við okkur og fengum okkur að borða í kaffitímanum og lékum svo áfram.

 

Minnum á foreldraviðtölin sem byrja í næstu viku og verða aðeins þessir tímar sem um ræðir, í boði, á skráningarblaðinu.

 Endilega skráið ykkur sem fyrst.

 

Góða helgi

 

Vikurnar 21.-feb- 2. mars

 

Við byrjuðum vikuna á því að fara í  gönguferð á bókasafnið. Þar hlustuðum við á söguna um maríuhænurnar og var myndum varpað upp á vegg. (myndir komnar inn). Svo var könnunarleikur á þriðjudeginum og tónlist á miðvikudeginum og svo á fimmtudeginum fórum við í vinaheimsókn á Stekk og hittu nokkrir systkini sín og gátu leikið við þau og aðra (myndir komnar inn), svo á föstudeginum var samsöngur og útivera.

Við byrjuðum seinni vikuna á að fara í hreyfingu og fóru allir sem voru með stuttbuxur í þær! (myndir komnar inn), svaka sport. Held að nánast allir séu komnir með stuttbuxur núna. Á þriðjudeginum prófuðum við að fara í einingakubba (enn fleiri myndir ;) )og leika með þá og það var mjög skemmtilegt. Á miðvikudaginn var svo tónlist. Og þann dag hætti Silja í eldhúsinu hjá okkur :( en í kveðjuskyni gaf hún öllum snúða með glassúri í kaffinu :) svaka gott. Á fimmtudaginn var svo könnnarleikur og fengum við vöfflur með sultu og rjóma í kaffinu. Í dag var svo samsöngur, útivera og leikur hjá okkur.

 

Fullt af skítugu í poka til að þrífa og endilega yfirfara töskur og hafa allt sem talið er upp á forsíðunni okkar.

 

Góða helgi

 

Vikan 13.-17. feb

 

Við byrjuðum vikuna á því að fara í göngutúr kringum leikskólann í góða veðrinu. Allir voru voða glaðir og duglegir því við vorum ekki með band til að halda í heldur leiddumst tvö og tvö. Einnig fórum við í fyrsta hópatímann :) 

Á þriðjudaginn var svo könnunarleikur.

Á miðvikudaginn fóru allir saman í tónlist í salnum þar sem að það var frekar fátt hjá okkur þessa vikuna (mest 12 börn) vegna veikinda :(

Á fimmtudaginn fórum við svo aftur í könnunarleik og vorum svo að lita með klessulitum og æfðum okkur í að klippa og líma. (sjá myndir á vegg við inngang), fórum ekkert út að leika vegna veðurs og gerðum bolluvendi. 

Á föstudaginn var svo samsöngur og loksins komumst út í góða veðrið og snjóinn.

 

Eigið góða helgi og allir að muna að koma með stuttbuxur á mánudaginn!

 

 

Vikurnar 30.jan-10. feb

 

Fyrri vikan var tannverndarvika. Við sungum lög tengd tannvernd, horfðum á Karíus og Baktus og Burstaprinsessuna og svo lituðum við myndir tengdar tönnunum okkar. Við fórum út að leika, í hreyfistund og tónlist. Við skelltum okkur í könnunarleik á fimmtudeginum og svo var samsöngur á föstudeginum.

 

Seinni vikan byrjaði á degi leikskólans og fórum við í göngutúr niður að Stjórnsýsluhúsinu og sungum ásamt hinum leikskólunum tvö lög og gengum svo til baka í rokinu!

Þessa vikuna áttum við líka listasmiðjuna og gerðum hveitibatik myndir og máluðum plastmyndir til að hengja í gluggana hjá okkur. Í dag var svo samsöngur og eftir smá veru í salnum þá var brunaæfing og gekk hún glimrandi vel og vorum við innan við mínútu að rýma leikskólann!

Góða helgi!

 

Vikurnar 9.-20 janúar

 

Settum ekkert inn í seinustu viku þar sem að við vorum með svo fá börn vegna veikinda.

En við héldum okkur við allt skipulagða starfið okkar eins og leikfimi, tónlist og könnunarleikinn.

Einnig þessa viku og gerðu allir kórónur í tilefni af bóndadeginum sem er í dag.

Við sungum fyrir strákana í samsöng og síðan fengu allir þorrasmakk: grjónagraut, lifrapylsu, blóðmör, svið, sviðasultu og harðfisk.

Í kaffinu fá allir flatkökur með hangikjöti :)

Góða helgi og góða heilsu.

Nýjar myndir komnar undir janúar albúmið :=)

 

Vikan 3.-6. janúar

 

Þessi vika var í rólegri kantinum, margir að týnast til baka úr jólafríi og þreyta í flestum svo við höfðum það bara notalegt. Fórum út að leika og vorum inni að leika okkur.

Minnum á álfabrennuna í dag, og gerðu börnin hatta í tilefni af þrettándanum ;) myndir komnar á síðuna.

Minnum alla á að koma með albúm, svo við getum notað þau þegar við byrjum í hópastarfi!

Á morgun er það svo seinasti jólasamsöngurinn kl 9:00 í fyrramálið þar sem við kveðjum jólin :)

Góða helgi.

 

Vikan 19.-23. des

 

Þessi vika var afar róleg hjá okkur.

Við byrjuðum vikuna á því að hafa aðventustund í salnum sem var voða kósý.

Annars var þessi vika mjög róleg, fórum ekki mikið út vegna veðurs og lékum okkur inni saman.

 

Gleðileg jól.

 

 

Vikan 12.-16. des

 

Þessi vika var svona frekar í rólegri kantinum.

Við hlustum mikið á jólalög á meðan við erum að leika okkur, og erum núna mikið í frjálsum leik og skiptum nokkrum sinnum yfir daginn um dót.

Elías hélt upp á afmælið sitt og bauð upp á íspinna ;) myndir komnar inn af afmælinu.

Á miðvikudaginn fórum við inn í sal að sjá jólahelgileikritið hjá Lundi um fæðingu Jesú sem var mjög flott hjá þeim.

Í dag var svo rauður dagur hjá okkur, jólaball og komu jólasveinar og allir fengu veglegan pakka (í boði foreldrafélagsins) Svo er núna jólamatur og jólaöl ;)

Góður dagur í dag og fullt af myndum komnar inn!

Endilega láta svo okkur vita ef börnin ykkar verða eitthvað í fríi milli jóla og nýárs upp á eldhúsið.

Góða helgi

 

Vikan 5.-9. des

 

Greinilega dottið út pistillinn fyrir seinustu viku, en við skulum vona að þessi haldi sig á sínum stað. En þá var vinavika og við heimsóttum Stekk og öfugt og gáfum þeim jólarós í vinargjöf á föstudeginum og horfðum saman á jólamyndina um jólasveinana.

Við fórum mjög lítið út að leika sökum mikils kulda.

Þessi vika hófst á hreyfingu í salnum og við notuðum líka tækifærið og æfðum fyrir jólaskemmtunina.

Á Þriðjudaginn var svo könnunarleikur.

Á miðvikudaginn tókum við upp æfinguna og munum sýna hana eftir jólaskemmtunina inni á deild í sjónvarpinu.

Á fimmtudaginn var svo aftur könnunarleikur.

Í dag hélt Arndís Halla upp á 2 ára afmælið sitt og bauð hún upp á ís í tilefni dagsins :) Við fórum aðeins yfir á Jaðar að leika og höfðum opið innra herbergið og nokkrir fengu að leika uppi á lofti. Svo kom séra Eðvarð og Sveinn Arnar organisti í heimsókn og hittum við þá inni í sal sem var voða notalegt. Á eftir verður svo jólaskemmtun okkar inni í sal og smákökur og kaffi inni á deild á eftir. Hlökkum til að sjá ykkur :)

Minnum á að nokkrum vantar enn albúm og svo eru komnar inn nýjar myndir síðan úr bakstrinum og síðan í morgun.

Góða helgi!

 

 

 

Vikan 21.-25. nóv

 

Þessi vika byrjaði á boltaleik í hreyfingu inni í salnum.

 Fórum ekkert mikið út þessa viku, margir að veikjast eða stíga upp úr veikindum og veðrið frekar leiðinlegt.

Á þriðjudaginn fóru allir í könnunarleik og þann dag byrjaði nýr strákur hjá okkur hann Stefán Pétur og bjóðum við hann velkominn í hópinn ;)

Á miðvikudaginn var svo tónlist og erum við að æfa núna fyrir jólaskemmtunina sem verður 9. des.

Á fimmtudaginn var svo opið hús og komu fullt af foreldrum að föndra með okkur, bara gaman.

Og í dag föstudag var svo fyrsta aðventustundin í salnum, kveikt á spádómskertinu og sungin Jólalög. Svo fóru allir út að leika og svo var smá jólaball í samveru fyrir matinn.

Góða helgi.

 

Vikan 14. -18. nóv

 

Þessa viku féll allt skipulagt starf niður vegna þess að við vorum með listasmiðjuna og vorum að föndra fyrir jólin :)

Á þriðjudaginn hélt Gabríel upp á 2 ára afmælið sitt og bauð upp á frostpinna.

Á miðvikudaginn var Dagur íslenskra tungu og fórum við með þuluna "buxur, vesti, brók og skór" inni í sal ásamt Jaðri fyrir alla hina. Svo í dag föstudag var svo ball í salnum í staðinn fyrir samsöng. Takk fyrir vikuna og góða helgi!

 

Vikurnar 31.- 10. nóv.

 

Við byrjuðum vikuna á því að fara í leikfimi á mánudeginum.

 Á þriðjudaginn var svo gönguferð út í tónlistarskóla sem gekk frábærlega og voru þau eins og englar að sitja í næstum 40 mínútur að hlusta á vökudagatónleika-æfinguna hjá Lundi. Frábær alveg.

Á miðvikudaginn var svo tónlist og útivera.

Á fimmtudeginum var síðan könnunarleikur sem alltaf er jafn spennandi.

Á föstudaginn var svo samsöngur og fórum við svo yfir á Jaðar að leika og fengu nokkrir að fara upp á loft!

Á mánudaginn var síðan hreyfing í salnum og vorum við í þrautabraut sem var mjög gaman. Þennan dag byrjaði líka nýr Pólskur drengur sem heitir Krystian :)

Á þriðjudaginn var síðan könnunarleikur og útivera.

Á miðvikudaginn var tónlist og voru allir mjög duglegir að syngja og spila.

Í dag fimmtudag var svo könnunarleikur. Nanna María hélt upp á afmælið sitt og bauð upp á frostpinna, takk fyrir okkur og til hamingju með daginn :) Einnig fóru allir í útiveru.

Muna að taka allt heim í dag þar sem leikskólinn er lokaður á morgun.

Við sendum teppin/sængurver og koddana/verin heim í þvott.

Sjáumst svo hress og kát á mánudaginn :)

Góða helgi.

 

Vikan 24.-28.okt

 

Jæja vikan hjá okkur byrjaði á því að fara í hreyfingu, við lékum okkur með bolta í hreyfingu og dönsuðum.

Á þriðjudaginn fóru svo allir í könnunarleik.

Á Miðvikudaginn var tónlist og æfðum við nokkur lög sem við ætlum að syngja næsta föstudag í samsöng fyrir alla hina :) við ætlum t.d. að syngja: spila saman, þrír strútar og dansa fuglalagið!

Á fimmtudag var könnunarleikur og bangsadagur og var tekið alla í myndatöku og er það efsta albúmið í myndasafninu okkar.

Í dag var svo samsöngur og vorum við áfram í salnum og lékum okkur með bolta :)

Alla daga fórum við út 2x og munum við gera það áfram á meðan veður leyfir enda eru þetta algjörir útigarpar :)

Minnum á að nokkrir eiga eftir að koma með albúm.

Góða helgi

 

 

Vikan 17.-21.okt

 

Þessi vika var mjög fljót að líða hjá okkur enda alltaf nóg að gera :) Alla vikuna fórum við út að leika okkur.

Á mánudaginn var hreyfing í salnum og við vorum að dansa og leika okkur!

Á þriðjudaginn var svo könnunarleikur. Drífa kom svo með litla kettlinginn sinn hana Dorrit ;) og okkur fannst hún æði!

Á miðvikudaginn fóru allir saman í tónlist og voru þau svakalega dugleg að syngja, spila á hljóðfæri og dansa.

Á fimmtudaginn var svo aftur könnunarleikur og í dag föstudag fórum við í samsöng og lékum okkur inni og úti.

Núna er svakalegur pollur í garðinum og fóru allir pollagallarnir í poka og eru vel blautir og skítugir.

Helst myndum við vilja ef allir kæmu með pollavettlinga því venjulegir vettlingar endast stutt þegar verið er að sulla mikið úti :)

Góða helgi

 

Vikan 10.-14. okt

Í þessari viku náðum við að halda alveg skipulaginu okkar.

 Við fórum í leikfimi í salnum á mánudag og fórum alla daga út að leika, stundum 2x.

Á þriðjudaginn var svo könnunarleikur, útivera og samvera.

Á miðvikudag fóru allir saman í tónlist og það var svakalega gaman og börnin einstaklega dugleg :) Síðan hélt Kristinn Ágúst upp á 2ja ára afmælið sitt og bauð upp á súkkulaði möffins og latabæjarís ;)mmm!

Á fimmtudaginn var síðan aftur könnunarleikur hjá okkur og á föstudaginn fóru allir í samsöng og lékum við okkur heilmikið inni og úti.

Enn vantar nokkrum albúm.

 

 

 

 Vikan 3.-7. okt

Þessi vika riðlaðist aðeins hjá okkur vegna þess að við vorum með listasmiðjuna ;)

Allir fóru í hreyfingu í salnum á mánudag, við vorum dugleg úti að leika og það var mjög gaman hjá okkur!

Á þriðjudaginn fóru svo allir í listasmiðjuna að mála, við vatnsmáluðum okkar fyrstu mynd sem hangir á ganginum hjá okkur :) og við límdum laufblöð á krukkur sem við notum sem kertastjaka og svo máluðum við tréfisk sem við munum hengja í gluggana hjá okkur!

Á miðvikudaginn hélt Camilla Anna upp á 2 ára afmælið sitt og bauð öllum upp á frostpinna.

Á föstudaginn var svo samsöngur í salnum, bleikur dagur og allir á Skarði með bleikar kórónur í tilefni dagsins. Endilega skoðið myndirnar í október albúminu. Einnig hélt Kristinn Máni upp á afmælið sitt og bauð upp á saltstangir og vorum við með afmælið í salnum og vorum að dansa og syngja, svo skelltu allir sér út í góða veðrið!

 

Muna að passa að hafa allt meðferðis sem börnin þurfa, Það er farið að kólna ansi mikið, einnig þurfa þau að komast í ullasokka í stígvélin.

Ef þið eigið eftir að kaupa kuldaskó á börnin þá mælum við eindregið með að kaupa loðfóðruð viking stígvél og hafa þau rúm svo þau komist einnig í þykka sokka.

Einnig megið þið þurrka út krossana fyrir ofan hólf barnanna ykkar þegar þið eruð búin að koma með það sem á vantaði.

Góða helgi ;)

 

 

26.-30.sept. 

Í þessari viku voru aðlögunarviðtöl og gengu þau ofsalega vel. Takk fyrir komuna og spjallið :) En við vorum dugleg úti að leika.

Allir fóru í hreyfingu saman á mánudaginn og vorum við í þrautabraut.

Á þriðjudaginn átti Elísa Ruth afmæli og bauð hún upp á snakk og piknik og það þótti svakalega gott! Einnig fóru allir í könnunarleik.

Á miðvikudaginn fóru allir í tónlist saman og svo hélt Auður Líf upp á afmælið og bauð hún upp á ís.

Á fimmtudaginn var svo könnunarleikur og í dag fóru allir í samsöng og út að leika áður en óveðrið skall á.

Takk fyrir vikuna og góða helgi :)

 

 

Þessi vika gekk ljómandi vel hjá okkur. Allir fóru í hreyfingu á mánudaginn en þá vorum við að dansa við fuglalagið, súperman og fleiri skemmtileg lög og fengum okkur svo bolta til að henda, sparka og rúlla :)

Á þriðjudaginn var svo könnunarleikur hjá hópunum og það þótti mjög skemmtilegt.

Á miðvikudaginn var svo tónlist og síðan var fyrsti göngutúrinn okkar og hann gekk svakalega vel, fórum góðan hring í tilefni af umferðarvikunni sem nú er. Svo hélt Adrian upp á 2ja ára afmælið sitt og bauð upp á frostpinna í tilefni dagsins ;)

Á fimmtudaginn var svo aftur könnunarleikur og það er alltaf jafn spennandi og skemmtilegt að sjá hvað þau gera með verðlausan óhefðbundinn efnivið eins og dósir, lykla, keðjur, keilur og flr. (Sést á myndunum).

Á föstudaginn var svo samsöngur og mikill leikur, t.d. buðum við stelpum upp á dúkkuleik saman og strákarnir fengu bíla, kalla og flr skemmtilegt!

Við fórum út 2x á dag alla vikuna og nýttum því veðrið vel.

Muna svo að skrá sig í aðlögunarviðtal sem verða í næstu viku ;)

Góða helgi

 

 

Í dag 21. sept. hélt Adrian Kári upp á afmælið sitt, hann bauð upp á frostpinna og óskum við honum innilega til hamingju með afmælið og takk fyrir okkur :) og eru komnar nokkrar nýjar myndir á myndasíðuna okkar.

 

Í þessari viku höfum við margt brallað. Á mánudaginn fóru allir í hreyfingu saman og vorum við að leika með bolta og hlustuðum á fjöruga tónlist. Á þriðjudaginn fórum við í könnunarleik og það er alltaf jafn spennandi og skemmtilegt :) Á miðvikudaginn fórum við í hópunum okkar í tónlist og gekk það rosalega vel. Á fimmtudaginn var svo könnunarleikur og á föstudaginn fórum við í samsöng í salnum. Alla dagana fórum við út að leika, sum fóru 2x út og við erum dugleg að borða ávexti áður en við förum út að leika :) Allir kátir og glaðir!

 

Ef eitthvað er, þá er bara að hafa samband, kveðja

Ragga, Maya, Drífa, Gunnhildur og Sigrún

 
Vallarsel | Skarðsbraut 6 | 300 Akranes | Sími: 433-1220 | vallarsel@akranes.is