ForsíðaNemendurForeldrarUm skólann
...syngjandi glöð í leik og starfi

Íris hefur verið að ræða mikið um að það sé hollt og gott að borða grænmeti.   Eitt barnið kemur stolt til Heiðu og Írisar og segir, ég á bugles heima hjá mér.   Þá segir Heiða, ég á saltstangir heima hjá mér.  Barnið sný sér að Írisi og segir hvað átt þú.  Íris segir að hún eigi bara ekkert heima hjá sér.  Þá segir barnið.  Íris átt þú ekki bara grænmeti. :) 

Forsíða :: Nemendur :: Skarð
Prenta vefsíðu

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Velkomin aftur á nýju ári :)

 

 

Minnum alla á að merkja ALLT!!! Skó og föt!

 

Enn vantar nokkrum albúm!!

 

Nú er farið að kólna ansi mikið og viljum við að þið passið upp á að hafa þykka peysu, úlpu og kuldagalla og jafnvel kuldskó/kuldastígvél og strigaskó! Einnig góða húfu, jafnvel tvær og góða vettlinga (ekki smábarna með engum þumli!!) Best að hafa pollavettlinga líka! Einnig að hafa pollagalla og stígvél. Þau verða að geta leikið sér úti í hvaða veðri sem er!

 

Minnis-listi: Það sem þarf að vera í leikskólanum:

 

Nóg af aukafötum (við geymum allavegana einn umgang í kassa inni á baði)

nóg af útifötum, skó og stígvél/kuldastígvél, kuldagalla, vettlinga, húfu, trefil, pollagalla og þykka peysu (jafnvel flísbuxur líka).

Bleyjur og blautbréf

snuð/dúkku/bangsa (til að sofa með)

Albúm!!

 

Þegar börnin ykkar eiga afmæli þá megið þið koma með ís, köku, popp, snakk, safa, ávexti, grænmeti eða bara eitthvað sem ykkur langar til ;)

 

Hlökkum til samverunnar í vetur, kveðja frá konunum á Skarði!

 

 

 

 

 

 

 

 

 
Vallarsel | Skarðsbraut 6 | 300 Akranes | Sími: 433-1220 | vallarsel@akranes.is