ForsíðaNemendurForeldrarUm skólann
...syngjandi glöð í leik og starfi

Drengur spyr: Var hópastarf í dag?  Kona: Nei í dag er þriðjudagur og þá er tónlist en ekki hópastarf.  Drengur: Já, eins og á laugardögum þá er ekki Kastljós heldur Spaugstofan. 

Forsíða :: Nemendur :: Lundur :: Gullkorn
Prenta vefsíðu

 

 

 Á leikskólann eru komnar þrjár nýjar konur þær Bergþóra, Anna Helga og Snjólaug.

 

Fyrsta skiptið sem Snjólaug kom til okkar var hún í staðinn fyrir Heiðu sem var í undirbúningi og sat á hennar borði í hádeginu. Allt í lagi með það. Daginn eftir segir einn strákurinn við Heiðu:  "Heiða, hvenær kemur Snjóflóða aftur til okkar" hehe (aðeins að rugla með nafnið hennar ;) )

 

 

21.jan 2011

 

Einn var úti að leika og var laminn í augað. Konan spurði hann þá: "með hverju lamdi hann þig?" Þá sagði drengurinn "HÆGRI" !!;)

 

Svo í morgun voru allir með kórónur í tilefni af þorranum, á Stekk voru gerðar víkingakórónur með horn. Segir þá einn drengurin við Hönnu, "Hanna, Þú ert KÝR" haha :)

 

18. apríl 2011

 

Einn drengurinn sagði við Grétu við matarborðið: Tennurnar mínar eru batteríslausar! (átti við bakteríulausar) hahahaha

 

20. apríl

Ein stelpan kemur til Röggu í útiverunni eitthvað leið og sagði: "Ég datt og meiddi mig"! Og Ragga klappar henni og spyr: "hvar?" Og þá bendir stelpan á bryggjuna og segir: "Þarna", en Ragga meinti þá hvar hún hafði meitt sig á líkamanum! hehe

 
Vallarsel | Skarðsbraut 6 | 300 Akranes | Sími: 433-1220 | vallarsel@akranes.is