Verið velkomin á heimasíðuna okkar!
Vikan 30 janúar – 3 febrúar
Þessa vikuna höfum við verið með tannverndaviku og höfum við verið að fræðast um hollt og óhollt, horfðum á Karíus og Baktus o.fl.
Á mánudaginn vorum við í heimspeki og við ræddum um hvort að það skipti máli hver kæmi fyrstur í leikskólann það voru allskonar hugmyndir í gangi með það.
Skólaheimsóknin í Grundaskóla var á þriðjudaginn og síðan fórum við i leikfimi og fengum við gesti frá Akraseli.
Á miðvikudaginn fórum við í bókasafnsheimsókn þar var lesinn saga fyrir okkur og síðan fengum við að skoða bækurnar í bókasafninu.
Við fórum tónlist í dag föstudag og vorum við að æfa rythma og spila hægt og hratt
Alltaf nóg að gera hjá okkur á Lundi J
Vikan 16 – 20 janúar
Enn ein vikan liðin, við byrjuðum á nýju lagi í heimspekinni en það er lagið Það eru ekki allir eins. Á þriðjudaginn var skólaheimsókn og leikfimi, fórum í málörvun á miðvikudaginn og á fimmtudaginn fórum við í tónlist og vorum við að vinna með Disney lög þ.e.a.s að láta börnin segja okkur hvað lögin hétu og úr hvaða mynd það væri. Við gerðum okkur víkingahatta fyrir bóndadaginn sem var í dag og vorum með hattana í samsöng og þegar þorrasmakkið var í hádeginu.
Vikan 9-13 janúar
Við byrjuðum vikuna á því að fá Snorra dýraeftirlitsmaður í heimsókn til okkar og kom hann með tvo hunda með sér og talaðu við okkur um hvernig við ættum að umgangast hunda og fór yfir nokkrar reglur.
Það var enginn skólaheimsókn eða leikfimi á þriðjudaginn vegna veðurs, vorum bara inni í rólegheitunum.
Við áttum listasmiðjuna þessa vikuna og vorum við dugleg að nýta hana, þæfðum myndir, máluðum allskonar myndir, teiknuðum myndir af fjölskyldunni.
Vikan 2-6 janúar
Gleðilegt ár
Þessa vikuna höfum við verið í rólegheitunum, við gerðum okkur grímur fyrir þrettándann, fórum í síðasta jólasamsönginn í morgun.
Í næstu viku hefjum við skipulagða starfið hjá okkur.
Vikan 18-23 desember
Í þessari viku höfum við verið í rólegheitum, það var aðventustund í salnum á mánudaginn, síðan dúlluðum við okkur í jólaföndri. Skelltum okkur í gönguferð og áttum notalegar og rólegar stundir
Vikan 12-16 desember
Það er búið að vera nóg gera síðust vikur hjá okkur, við sýndum helgileikinn 7.desember og gekk það rosalega vel enda duglegir krakkar. Í þessari viku höfum við verið að föndra, sýndum helgileikinn aftur fyrir leikskólann og eina deild af Akraseli. Fórum í síðasta leikfimistímann fyrir jól og vorum í ásadansi í öllum salnum og var mikið fjör hjá okkur. Á fimmtudaginn fórum við á jólasamsöng í Grundaskóla. Í dag föstudag var svo rauður dagur og jólaballið hjá okkur í leikskólanum og fengum við góða gesti í heimsókn.
Vikan 21-25 nóvember
Við viljum byrja á því að þakka öllum fyrir frábæra morgunstund á fimmtudaginn þegar við vorum með opið hús. Okkur fannst þetta takast mjög vel og við vonum að foreldrar og aðrir gestir hafi átt rólega og notalega stund með börnunum.
Hefðbundið starf var í vikunni, þ.e.a.s á mánudaginn var heimspeki, á þriðjudaginn fór hluti af börnunum í skólaheimsókn í Grundaskóla en það var síðasta heimsóknin á þessu ári. Við fórum líka í leikfimi á þriðjudeginum og vorum í boltaleikjum. Markviss málörvun var á miðvikudaginn og stafakynning var líka tekin í vikunni þar sem stafurinn J var kynntur. Núna tekur hins vegar við æfingar fyrir jólaskemmtunina okkar og mun hún eiga allar okkar stundir á næstunni fyrir utan þær stundir sem við ætlum að nota til að jólaföndra meira og við reynum líka að eiga rólegar stundir í desember.
Vikan 14-18 nóvember
Enn ein vikan flogin frá okkur og það styttist í jólin J
Við vorum í hefðbundnu starfi þessa vikuna. Á miðvikudaginn fórum við í salinn í tilefni af Degi íslenskra tungu og var hver deild með eitt atriði. Í dag föstudag fórum við síðan í Grundaskóla og hittum krakkana úr 1. Bekk. frá Akrasel og Garðaseli og þar sýndum við eitt atriði. við sungum Maístjörnuna.
Við erum byrjuð að æfa okkur fyrir helgileikinn og eru allir komnir með einhver hlutverk í sýningunni.
Fimmtudaginn 24. Nóvember verður opið hús í leikskólanum frá kl.9:00 – 10:30 og þá ætlum við að eiga saman notalegastund við að föndra inn á deild
Miðvikudaginn 7. Desember kl. 13:30 þá er jólasýningin okkar á Lundi.
.
Vikan 31 október – 4 nóvember
Þessi vika var frekar óhefðbundinn við vorum ekki í neinu skipulögðu starfi heldur var áherslan lögð á æfingar fyrir Vökudagstónleikana. Tónleikarnir tókust frábærlega og stóðu börnin sig ótrúlega vel J
Á þriðjudaginn fórum við í leikfimi og vorum við með bandystöðvar.
Við gerðum okkur svo glaðan dag á fimmtudaginn og var það virkilega skemmtilegt.
Í morgun fórum við svo í samsöng og síðan skelltum við okkur í gönguferð.
Vikan 17-21 október
Þessi vikuna áttum við listasmiðjuna og fékk því dagskipulagið að víkja, við vorum mjög dugleg að vinna í listasmiðjunni, vorum mikið að vinna með sand mála með honum og líma. Einnig gerðum við myndir af húsunum okkar og margt fleira. Við byrjuðum líka í vikunni að perla eftir munstri og notum það til að skreyta aðeins deildinna okkar.
Hópur 3 fór í skólaheimsókn í Grundaskóla á þriðjudaginn og hafa heimsóknirnar gengið mjög vel. Í leikfimi vorum við að leika okkur með bolta og fórum líka í leiki, alltaf jafn gaman í leikfimi J
Í tónlistinni héldum við áfram að æfa okkur fyrir Vökudagstónleikana.
Í morgun skelltum við okkur í salinn og fórum í ásadans en það er eitt af því skemmtilegasta sem við gerum í salnum J
Vikan 10-14 október
Í þessari viku hefur verið hefðbundið starf það var reyndar ekki heimspeki á mánudaginn þar sem Heiða var á námskeiði. Hópur 2 fór í skólaheimsókn í Grundaskóla á þriðjudaginn og síðan var leikfimi þar sem við vorum í boltaþrautum sem gekk mjög vel.
Í málvörvun var Áslaug að vinna með setningar en hvert barn sagði eina setningu sem Áslaug skrifaði á blað og við hengdum upp.
Í tónlistinni vorum við að vinna með lögin fyrir Vökudagstónleikana
Í samsöng í morgun sungum við tvö lög fyrir leikskólann og gekk það mjög vel
Vikan 3-7 október
Þessa vika hefur verið aðeins öðruvísi þar sem það voru foreldraviðtöl í vikunni. Á þriðjudaginn fór fyrsti hópurinn í skólaheimsókn í Grundaskóla og gekk það mjög vel. Í leikfimi vorum við í fimleikastöðvum.
Við förum á fimmtudaginn í afmæli Grundaskóla á Jaðarsbökkum en þar var stór samsöngur.
Við förum í gönguferð á Akrasel fyrir hádegi í dag föstudag og lékum okkur þar í garðinum.
Erum búin að vera dugleg að æfa lögin fyrir vökudagstónleikana.
Vikan 26 – 30 september
Í þessari viku hefur verið hefðbundið starf, í stafakynningu tókum við fyrir stafinn D, í heimspekinni vorum við að ræða hvort við mættum fara í bæinn og kaupa popp og tyggjó og voru þau flest sammála um það að þau mættu fara í búðina þegar það væri laugardagur eða frí, það töluðu allir um það að mamma og pabbi bönnuðu þeim að fara í búðina og fannst mörgum það frekar óréttlátt þar sem þau eru nú 5 ára J
Í leikfimi vorum við í allskonar boltaþrautum og fannst þeim það mjög skemmtilegt , börnin eru orðinn mjög dugleg að klæða sig úr og í og ganga frá fötunum sínum J
Í málörvun vorum við að læra um setningar
Í tónslistinni vorum við að æfa á lögin sem við ætlum að syngja á Vökudagstónleikunum og æfa okkur að spila á ýmis hljóðfæri.
Vikan 19-23 september
Þessa vikuna erum við búin að sýsla margt við fórum í stafakynningu og tókum fyrir stafinn B, það gekk mjög vel og þau eru orðinn dugleg að finna orð.
Við fórum að taka upp kartöflur og börnin voru mjög ánægð að fá að taka kartöflur með sér heim, sumum fannst nú ekkert mjög spennandi að vera að róta í moldinni og leita af kartöflum J
Fórum svo í leikfimi og vorum við með leiki, fórum í stórfiska og gerðum ýmsar æfingar, allir duglegir að taka þátt í leikfimi.
Í tónlistinni vorum við að syngja lögin sem við erum að æfa fyrir vökudagstónleikana, spila á tóna og þríhorn, vorum að æfa rythma.
Við fengum Þráinn slökkviliðsstjóra í heimsókn til okkar og ræddi hann við þau um brunavarnir en í næstu viku byrjum við á verkefninu Aðstoðarmaður slökkviliðsins. Teiknuðum svo mynd eftir heimsóknina .
Endilega kvittið í gestabókina svo að við sjáum að einhver er að fylgjast með okkur ;)
Kveðja
Heiða, Áslaug, Birna, Guðrún Erla og Magga.