ForsíðaNemendurForeldrarUm skólann
...syngjandi glöð í leik og starfi
Börnin voru að borða eplabáta og Kristjana fékk sér líka.  Hún beit 1 bita og stakk síðan restinni upp í sig.  Þá sagði ein stúlka: " Þú ert að troða."  Kristjana varð heldur kindarleg, því þetta var alveg rétt.  Síðan sagði Kristjana við einn strák sem ar að biðja um meira epli en var með fullan munn: "Núna ert þú að troða."   Þá sagði stúlkan: "Hann er að gera eins og þú."

 

Forsíða :: Nemendur :: Jaðar :: Gullkorn
Prenta vefsíðu

 

 

 

Gullkorn af Jaðri

 

Stelpa var að missa sokkabuxurnar niður um sig og segir “Ég er að missa mig”

 

Drengur var að lita umferðarljós og vildi endilega taka myndina með sér, þegar hann var sóttur. Þá spyr mamma hans hvað sé á myndinni. “Nú vasaljós”

 

Hrefna var að spyrja krakkana hvert ein stúlkan væri að flytja. Drengur “ í fjörulandið! (Færeyjar)

 

Við vorum að fara í strætó að skoða jólaljósin í bænum og Guðmunda var að hjálpa einum drengnum að klæða sig. Þau eru eitthvað að ræða um hvert sé verið að fara og að við værum að fara í strætó. Þá segir drengurinn. “já að hitta kellingarnar”.

 

Drengur spyr Áslaugu (úti) hvort hann megi glenna? (en á við að renna).

 

Þessi er líka með hlaupakúlu (hlaupabólu)

 

Það barst í tal við matarborðið að mömmurnar væru að vinna, Þá sagði Guðmunda að hún væri líka í vinnunni. Þá spurði einn drengurinn. Guðmunda hvar vinnur þú?

 

Við vorum lögð af stað í gönguferð, þá segir drengur, Hrefna við gleymdum myndavélinni. (Það hafði gerst ansi oft þannig að hann minnti mig rækilega á).

 

Stúlka og drengur voru að öskra inni.  Hrefna segir ekki hafa svona hátt, notið þið inni röddina.  Þá öskrar stúlkan, INNI RÖDDINA.

 

Stúlka missti diskinn sinn með grjónagraut á gólfið í matartímanum.  Drengur situr við hliðina á henni, lítur á gólfið og segir, Ertu ekki að grínast, skammastu þín. 

 
Vallarsel | Skarðsbraut 6 | 300 Akranes | Sími: 433-1220 | vallarsel@akranes.is