ForsíðaNemendurForeldrarUm skólann
...syngjandi glöð í leik og starfi

Íris hefur verið að ræða mikið um að það sé hollt og gott að borða grænmeti.   Eitt barnið kemur stolt til Heiðu og Írisar og segir, ég á bugles heima hjá mér.   Þá segir Heiða, ég á saltstangir heima hjá mér.  Barnið sný sér að Írisi og segir hvað átt þú.  Íris segir að hún eigi bara ekkert heima hjá sér.  Þá segir barnið.  Íris átt þú ekki bara grænmeti. :) 

Forsíða :: Nemendur :: Hnúkur
Prenta vefsíðu

 

Verið velkomin á heimasíðuna okkar.

 

 

 

Vikan 30. jan.- 2. feb. 2012

 

Þá er aldeilis viðburðarík og skemmtileg tannverndarvika á enda runnin.

Mikið hefur verið rætt um hollan og óhollan mat og hvaða matur skemmir tennurnar frekar en annar.

 Við fléttuðum tannvernd við námssviðin hreyfingu, tónlist, málörvun og heimspeki við mikla ánægju barnanna,

 en Karíusar og Baktusarleikurinn í hreyfingu sló í gegn.

Heimsóknin á Tannlæknastofuna við Laugabraut var mjög vel heppnuð og allir prófuðu að setjast í stólinn.

Guðrún fræddi okkur um mikilvægi góðrar tannhirðu, en allir eiga að bursta tennurnar tvisvar á dag.

 Mamma eða pabbi eiga að bursta tennurnar í börnunum alveg fram að tíu ára aldri :)

Á föstudag fengum við dýrindis grænmetisbakka úr eldhúsinu og allir krakkarnir voru rosa dugleg að smakka.

 

 

Mánudaginn 6. febrúar er DAGUR LEIKSKÓLANS. Af því tilefni er appelsínugult þema á Hnúki og mega  

börnin  gjarnan klæðast e.h. appelsínugulu þennan dag. 

Sama dag kl. 9:30 ætla allir leikskólar bæjarins að hittast fyrir utan Ráðhús Akraness og syngja saman, börnin verða að vera komin kl. 9:00.

Takk fyrir vikuna og góða helgi.

 

 

 

Vikan 23.-27. janúar 2012

 

Þessi vika var hefðbundin og allt hópastarf á sínum stað með hreyfingu, tónlist,

 stig af stigi og heimspeki.

Þó má segja að óvenju margir áttu afmæli

 þessa vikuna á Hnúki en fyrst ber að telja Sallý sem átti afmæli á sunnudaginn.

Á þriðjudag varð Guðmundur Óli 4 ára  og af því tilefni bauð hann okkur og ömmu Jónínu sem vinnur á Stekk uppá frostpinna. Ísak Orri varð 5 ára á fimmtudaginn og í tilefni þess bauð hann uppá frostpinna og Valdís hélt uppá 4 ára afmælið sitt á föstudag og bauð líka upp á frostpinna og fékk Líf stóru systur í heimsókn.

Við óskum afmælisbörnunum innilega til hamingju með afmælin sín og

þökkum kærlega fyrir veitingarnar.

Til gamans látum við flakka með gullkorn sem einn 4 ára sagði mjög hugsi í afmælisveislu Ísaks Orra. "Ísinn er rosalega kaldur" ha, ha, ha....

 

 

Í samsöng á föstudag var afmælissöngurinn sunginn fyrir afmælisbörn vikunnar og nokkur börn af Hnúki spiluðu á hljóðfæri undir söng með hljómsveit Vallarsels:)

 

 

Í næstu viku er Tannverndarvika í leikskólanum og ætla börn fædd 2007 að fara á fimmtudaginn í heimsókn á tannlæknastofuna á Laugabraut.

Takk fyrir vikuna og góða helgi.

 Kv. Arna, Guðmunda, Gulla, Lísbet og Sallý

 

Vikan 16.-20. janúar 2012

 

Þessa viku höfum við átt listasmiðjuna og notið þess að mála og föndra í litlum hópum undir stjórn Gullu.

Við nýttum líka listasmiðjuna til að tengja heimspekina skapandi vinnu. Árgangur 2007 bjó til köttinn Krúsilíus, hver með sínu nefi

 og árgangur 2008 gerði sól, en sól kemur einmitt fyrir í laginu Háttatími á himnum.

 

 Í hópastarfi fórum við í tónlist og hreyfingu. en stig af stigi felldum við niður vegna listasmiðjuvinnu.

Í hreyfingu vorum við með stöðvaþjálfun og

 í tónlist æfðum við okkur að spila takt á tónastubba og tóna við lögin Furðuverk og Zum gali. Einnig æfðum við klapp stapp.

 

 

 

Í tilefni bóndadags og byrjun þorra sungu stelpur fyrir stráka í samsöng í morgun og óskum við öllum strákum, pöbbum og öfum til hamingju með daginn.

Í hádeginu var þorrablót á Hnúki þar sem allir höfðu heimatilbúin Víkingahöfuðföt á höfði og snæddu hrísgrjónagraut ásamt sviðum, sviðasultu, kaldri lifrarpylsu og blóðmör og harðfisk með smjöri. Í kaffinu fengum við flatkökur með hangikjöti.

 

Ekki má gleyma öllum góðu leikstundunum okkar í vikunni, samveru- og sögustundum,

en undir hlekknum söngtextar hér til vinstri má sjá sönglög janúarmánaðar og í myndaalbúminu myndir frá þorrablótinu og listasmiðjuvinnunni.

 Takk fyrir vikuna og góða helgi. Kv. Arna, Gulla, Guðmunda, Sallý og Lísbet.

 

 

 

 

Janúar 2012

 

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir góð samskipti á því liðna.

 

Nýja árið fór hægt af stað hjá okkur en skipulagt hópastarf hófst mánudaginn 9. janúar

svo nú mega allir muna eftir hreyfingarfötunum á þriðjudögum.

Í fyrsta hreyfingartíma ársins voru allir saman því það vantaði svo mörg börn. Við lékum með fallhlífina, fórum í hlaupa í skarðið og að lokum gerðum við teygju- og slökunaræfingar.

 

Við fengum góða gesti í heimsókn á mánudaginn en þá kom hundaeftirlitsmaður Akraness

með tvo Labrador hunda, þá Mugg og Barón og ræddi við börnin um umgengnisreglur við hunda. Allir fengu síðan blað með sér heim með reglunum og hvetjum við foreldra til að ræða við börnin sín um þær. 

 

 

Desember 2011.

 

Við óskum Hnúkurum og fjölskyldum þeirra 

gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári

 með þökk fyrir góð samskipti á árinu.

 

Arna, Guðmunda, Gulla, Sallý og Lísbet.

 

Fimmtudaginn 22. desember var kaffihúsastemming á Hnúki en Gulla gerði heitt súkkulaði handa okkur í kaffinu

 sem við drukkum með þeyttum rjóma og borðuðum smákökur með, nammi, namm :)

 

 

Það var líf og fjör á jólaballinu okkar á föstudaginn, en við fengum nokkra unga sveinka úr Grundaskóla í heimsókn

og svo kom hann Skyrgámur alvörujólasveinn.

Hann söng og dansaði með okkur í kringum jólatréð og allir fengu pakka frá honum. Í hádeginu borðuðum við svínasteik með brúnuðum kartöflum, grænum baunum, rauðkáli og brúnni sósu og fengum jólaöl, nammi, namm.

Síðustu dagana fyrir jól verður engin sérstök dagskrá hjá okkur, en vonandi eigum við notalegar stundir við leik og föndur :)

 

13. desember 2011

 

Við þökkum öllum kærlega fyrir komuna á jólaskemmtun Hnúks, en krakkarnir stóðu sig alveg ljómandi vel á sviðinu.

Í morgun fórum við heim til Guðmundu í vöfflukaffi og áttum saman notalega og jólalega stund. Takk elsku Guðmunda fyrir okkur.

 Á föstudag er jólaballið og rauður dagur í Vallarseli. Hnúkur mun dansa í kringum jólatréð kl. 10:00.

 

Vikan 28. nóv.-2. desember.

 

Þá er skemmtileg vinavika að renna sitt skeið á enda en auðvitað halda allir áfram að vera góðir vinir í Vallarseli :)

Í lok vikunnar gáfu krakkarnir á Jaðri Hnúkurum litla jólasveina sem þau höfðu búið til

og buðu okkur upp á smákökur sem þau höfðu bakað.

Takk fyrir skemmtilega vinaviku allir okkar góðu vinir á Jaðri.

Á mánudaginn átti Gylfi Þór 4 ára afmæli og af því tilefni bauð hann okkur upp á jólaíspinna.

Til hamingju elsku Gylfi Þór og takk fyrir okkur.

 

 

Á þriðjudaginn var leiksýning í boði foreldrafélagsins þar sem sýnt var leikritið "Strákurinn sem týndi jólunum".

Mjög skemmtilegt og fyndið leikrit um strák sem hafði gleymt hinum sanna jólaanda og hlakkaði ekkert til jólanna,

fannst bara sjálfsagt að fá tuttugu og fimm jólapakka.

En með hjálp góðra vina fann hann aftur gleðina í hjarta sínu og fylltist tilhlökkun komu jólanna.

Góður boðskapur þar á ferð.

 

 

Hefðbundið hópastarf féll niður að mestu leiti vegna gagnkvæmra heimsókna vinadeildanna en við fórum

í tónlist á miðvikudaginn og höfðum æfingu fyrir jólaskemmtunina sem verður föstudaginn 9. desember kl. 13:00.

Í desember gefum við hópastarfinu frí, þess í stað ætlum við að leggja áherslu á að njóta aðventunnar við jólaföndur, söng, gleði og grín. Takk fyrir vikuna og góða helgi. Kv. Arna, Gulla, Guðmunda, Lísbet og Sallý.

 

Vikan 21.-25. nóvember.

 

Við þökkum öllum sem komu á Opið hús fyrir komuna og áttu með okkur skemmtilega- og notalega stund við jólaföndur.

Afraksturinn , sveinkarnir sem nú prýða Hnúk eru alveg hreint frábærir.

 Í næstu viku er vinavika í Vallarseli bæði meðal barnanna og starfsmannahópsins. Hefðbundið hópastarf fellur niður þessa viku, en við höfum tónlistarstund á miðvikudaginn kl.13:00. Einnig verður leiksýning á þriðjudaginn í boði foreldrafélagsins þar sem sýnt verður leikritið strákurinn sem týndi jólunum.

 Hnúkur og Jaðar verða vinadeildir og munu hittast á mánudaginn í salnun kl. 9:15

 og gera e.h. óvænt og skemmtilegt saman :)

Á þri. mið. og fim fer einn hópur af hvorri deild í heimsókn á vinadeildina ásamt starfsmanni 

og tekur þátt í leik og starfi þar frá kl. c.a. 9:00-10:30.

Á föstudag verður svo Aðventustund í salnum þar sem allar deildir leikskólans hittast og syngja saman jólalög.

Þau jólalög sem sungin verða á aðventunni má sjá undir hlekknum söngtextar hér til vinstri.

Við þökkum fyrir vikuna og óskum ykkur góðrar helgar.

Kv. Arna, Gulla, Guðmunda, Lísbet og Sallý

 

 

 

Vikan 14.-18. nóvember.

 

Tíminn líður títt og ótt, tifar klukkan dag og nótt.... eins og segir í laginu og bara 5 vikur til jóla. Við viljum benda foreldrum á Opið Hús í leikskólanum 24. nóvember n.k. frá kl. 9:00-10:30.

 Þá ætlum við að eiga saman notalega stund við jólaföndur á Hnúki.

Föstudaginn 9. desember kl. 13:00 verður jólaskemmtun Hnúks. Þá verða börnin með tónleika í salnum og á eftir verða smákökur, kaffi og mjólk í boði inni á deild.

Endilega takið frá þessar dagsetningar :)

Í tilefni af degi íslenskrar tungu 16. nóvember hittust allar deildir á samkomu í salnum og börnin skemmtu hvert öðru. Krakkarnir á Hnúki fluttu lagið Á íslensku má alltaf finna svar... og stóðu sig alveg frábærlega þrátt fyrir að aðeins 15 börn voru mætt þennan dag.

 

 

 

Hópastarfið var á sínum stað í vikunni.

Í hreyfingu voru stöðvar með boltaþrautum t.d. körfubolti, fótbolti, skoppuboltar

og rúlla á milli og eða kasta og grípa.

Að sjálfsögðu voru teygju- og slökunaræfingarnar góðu úr bókinni Ég er slanga í lokin.

Í málörvun héldum við áfram að þjálfa hlustun, einbeitingu og fara eftir fyrirmælum,

fórum með þuluna og lékum okkur með rím.

Allir hópar voru saman vegna dagskrár í salnum á degi íslenskrar tungu. Sömu sögu er að segja af tónlistinni, allir hópar saman og núna æfum við markvisst fyrir jólaskemmtunina

söng og hljóðfæraleik :)

 

 

Vikan 31. okt.-4. nóv.

 

Mikið líður tíminn hratt, komið að vikulokum og aðeins sjö vikur til jóla.

Þessi vika var frábrugðin en á þriðjudag var ekki hreyfistund því við fórum í Tónberg að sjá börnin á Lundi á lokaæfingu fyrir tónleika Vallarsels á Vökudögum. Krakkarnir voru alveg frábær á sviðinu  og flott efnisskrá.

 

 

 

Á miðvikudag fóru börn fædd 2007 í sögustund á bókasafnið.

Hefð er fyrir því að elstu börn leikskólans fari tvisvar á vetri í slíkar heimsóknir. Vegna anna hjá Lundarbörnum við undirbúning Vökudagstónleikanna gátu þau ekki farið í þetta sinn svo 4 ára börnin á Stekk og Hnúk fengu að fara í staðinn. Ásta og Nanna tóku á móti hópnum og lásu bangsasögu. Síðan skoðuðum við alla bangsana sem eru til sýnis á safninu í tilefni alþjóða bangsadagsins sem var 27. okt. s.l. og að lokum máttum við leika í bílnum og skoða bækur. Krökkunum fannst mjög gaman á bókasafninu og voru stillt og prúð og fóru eftir reglunum sem þar gilda :)

 

 

Við höfðum alla hópa saman í tónlist eins og í síðustu viku og æfðum að spila takt á ýmis hljóðfæri og gekk það vel :) Á eftir fórum við í Ásadans og Setudans og var mikið fjör í salnum.

 Fimmtudagurinn var eini hefðbundni hópastarfsdagur vikunnar en þá fóru allir hópar í heimspeki.

Eldri börnin fóru í klókindi og siðferði samkvæmt námsefni Sigurðar. Fyrst hlustuðu þau á lagið um Krúsilíus, síðan ræddu þau um hvað er að vera klókur? og eru öll börn klók? Skráningu frá umræðunum má sjá á heimspekiveggnum okkar.

 Yngri hópur var að leika sér að gera tilraunir með vatn og matarlit á myndvarpa og athuga hvort þau gætu búið til sól og tungl með skuggunum. Skemmtileg tilraun og eru myndir frá henni í myndaalbúmi deildarinnar.

Íris Arna hélt upp á 4 ára afmælið sitt í dag föstudag og bauð okkur upp á ís og Gulla bauð okkur upp á snakk í tilefni af afmælinu hennar.

Til hamingju elsku Íris Arna og Gulla okkar og takk fyrir veitingarnar.

 

 

Mikið er gaman að sjá hvað margir foreldrar eru að fylgjast með starfinu okkar og

takk fyrir fallegar kveðjur í gestabókina okkar :) Góða helgi með kveðju frá skvísunum á Hnúki.

 

 

Vikan 24.-28. okt.

 

Þessa viku áttum við listasmiðjuna og nutum þess að mála, klippa, líma, lita og leika. Á miðvikudaginn vorum við meira að segja með nónhressinguna þar og fannst krökkunum það mikið sport.

 Í hópastarfi fórum við í hreyfingu og tónlist , en felldum niður heimspeki og málörvun.

Í hreyfingu var stöðvaþjálfun með sama sniði og í síðustu viku.

Í tónlist voru allir hópar saman en við vorum að æfa okkur að standa á sviðinu, syngja og spila á hljóðfæri eins og við værum með tónleika. Góð æfing fyrir jólatónleikana í desember :) Á fimmtudag byrjaði ljósmyndasýning Vallarsels í Tónbergi í tilefni Vökudaga. Á sýningunni eru myndir eftir börn fædd 2007 af umhverfi þeirra, séð með þeirra augum. Við hvetjum foreldra til að gera sér ferð í Tónberg og skoða sýninguna.

 

 

 

Alþjóðlegi bangsadagurinn var 27. október og þann dag máttu börnin koma með bangsann sinn í leikskólann. Alls kyns furðudýr mættu á Hnúk þennan dag og tóku þátt í leik og samveru með eigendum sínum :)

Í myndaalbúminu okkar eru fullt af nýjum myndum sem teknar voru í leik og starfi í október. Takk fyrir vikuna og góða helgi. Kveðja Arna, Guðmunda, Gulla, Lísbet og Sallý.

 

 

Vikan 17.-21. okt.

 

Þá er enn ein vikan liðin og aftur komið helgarfrí en starfið þessa viku var með hefðbundnum hætti.

 

Í hópastarfi fórum við í hreyfingu, tónlist, stig af stigi og heimspeki. Við höfðum stöðvaþjálfun í hreyfingu þar sem við æfðum okkur að ganga á stultum, draga okkur áfram á teppamottum, hoppa á trampolíni, hitta frisbiedisk í hring og leika hreyfingar dýra. Allir voru mjög duglegir, en erfiðast var að ganga á stultum :)

Tónlistartíminn var með svipuðum hætti og í síðustu viku. Klapp, stapp, spilað á hljóðfæri við þuluna og hljóðfæraleikur við tónlist. Í samverustund syngjum við sönglög mánaðarins og undir hlekknum söngtextar hér til vinstri getið þið séð sönglög október mánaðar. Við viljum líka getaa þess að söngbók Vallarsels er komin í sölu og kostar 1500 kr.

 

 Allir hópar unnu með hljóðfæri í heimspekinni og má sjá skráningu úr tímunum á Heimspekiveggnum. Í stig af stigi fóru krakkarnir í leikinn ,,Símon segir" og æfðu sig í að gera alveg eins og öðruvísi.  Það gekk ágætlega en þau voru misfljót að átta sig á hugtakinu öðruvísi.

 

Eftir samsöng á föstudag vorum við með fínhreyfingastöðvar þar sem í boði var að þræða perlur á band, sauma í stramma og þræða glerperlur á vír. Krakkarnir voru mjög dugleg og prýðir afraksturinn nú Hnúk.

 

Takk fyrir vikuna og góða helgi, kv. Arna Guðmunda, Gulla, Lísbet og Sallý.

 

 

Vikan 10.-14. okt.

Á mánudaginn fór eldri hópur í gönguferð um nágrenni leikskólans til að vinna verkefni fyrir vökudaga.

Zuza átti 4 ára afmæli þann 8. október og af því tilefni bauð hún okkur upp á frostpinna í hádeginu á mánudag.  Til hamingju elsku Zuza og takk fyrir okkur. 

Í hópastarfi fórum við í hreyfingu, málörvun, tónlist og heimspeki.

Í hreyfingu lékum við okkur með fallhlífina en fyrst lét Arna okkur labba eins og kónguló, skríða eins og ormur, hoppa eins og froskur og margar fleiri þrautir.  Í lokin teygðum við og slökuðum á undir tónlist Friðriks Karlssonar :)

Við héldum áfram að læra þuluna Úen, dúen í málörvun og fórum í leik sem kallast upplýsingaleikur.  Hann er þannig að Arna sagði t.d. "ég á heima ..., hver er ég"?  og sá sem viðkomandi upplýsingar pössuðu við átti að segja "það er ég".  Þetta gekk mjög vel :)  Að lokum fórum við í Hvíslleik en báðir þessir leikir þjálfa börnin í hlustun og einbeitingu.

Í tónlist æfðum við klapp, stapp og spila takt við þuluna epli, epli.  Síðan fengu börnin að velja sér hljóðfæri sem þau kynntu fyrir hinum og að lokum spiluðum við undir á hljóðfæri með Páli Óskari og fórum í leik sem gekk út á það að dansa við trommuslátt og stoppa þegar hann hætti.  Sá sem stoppaði síðastur varð úr.

Allir fóru í heimspeki á fimmtudaginn.  Eldri teiknuðu nýja mynd af Krúsilíusi og má sjá báðar teikningar á Heimspekiveggnum. Óhætt er að segja að mikil þróun hafi átt sér stað og ótrúlegustu smáatriði komin á blað :)  Yngri hópur var að ræða t.d. um hvaðan geislar sólarinnar koma, hver var að hrista hattinn sinn og hvort sólin væri með sæng.  Einnig teiknuðu þau mynd af umræðuefninu.  Bæði teikningar og skráningar hanga uppi á Heimspekiveggnum.

Í samsöng var Lundur með skemmtiatriði og sungu þau tvö lög sem verða á efnisskrá tónleikanna á Vökudögum, mjög flott hjá þeim.  Að venju var afmælissöngurinn sunginn fyrir afmælisbörn vikunnar og var Matthías Leó þar á meðal en Zuza var veik.

Við minnum á hreyfingafötin.  Takk fyrir vikuna og góða helgi.  Kv.  Arna, Gulla, Guðmunda, Magga og Sallý.

 

Vikan 3.-7. okt.

Við þökkum þeim foreldrum sem sáu sér fært að mæta í foreldraviðtölin, en svona viðtöl eru án efa mjög góð til að efla enn frekar samskipti heimilis og skóla :)

Á mánudaginn átti Sævar Þór 4 ára afmæli.  Af því tilefni bauð hann upp á saltstangir og sleikjó.  Til hamingju elsku Sævar Þór og takk fyrir okkur.

Á þriðjudag fengu allir krakkarnir gefins endurskinsmerki frá Rauða krossinum - takk fyrir.  Það er nauðsynlegt að vera sýnilegur í umferðinni þegar veturinn með myrkrið tekur völdin :)

Í þessari viku var hreyfing, stig af stigi, tónlist og heimspeki. 

Við höfðum aftur þrautabraut í hreyfingunni og gekk mjög vel.  Allir krakkarnir eru mjög duglegir að fara eftir fyrirmælum og reglum.  Við bættum einni teygju við svo nú kunnum við að gera eins og fíllinn sem sveiflar rananum upp og niður :)

Í stig af stigi fórum við í þykjustuleik með orðunum er og er ekki.  Síðan héldum við áfram að tala um tilfinningarnar hissa, undrandi og hræddur og gekk það mjög vel.  Börnin eru orðin mjög dugleg að taka þátt.  :)

Tónlistin var á sínum stað á miðvikudag.  Við héldum áfram með þuluna Epli, epli... og spiluðum taktinn á hljóðfæri, gekk ágætlega.  Siðan spiluðum við á hljóðfæri með tónlist af diskinum Africa on ice og að lokum fórum við í leik, bara gaman :)

Eldri fóru í heimspeki á fimmtudag með Guðmundu og Sallý.  Umræða var um lagið Krúsilíus og teiknuð var stór mynd af honum og börnin sögðu frá öllu sem þau vita um köttinn og var það sett inn á myndina.  Heimspekin var felld niður hjá yngri þar sem vantaði svo mörg í hópinn.

Hnúkur var með atriði í samsöng á föstudag.  Börnin sungu lagið Dýrin í Afríku 5 erindi og spiluðu á egg í viðlaginu.  Þau stóðu sig ekkert smá vel á sviðinu, flottir krakkar :)

Að vanda var svo afmælissöngurinn sunginn fyrir afmælisbörn vikunnar og meðal þeirra var Sævar Þór okkar. 

 Í næstu viku verða tvö afmælisbörn frá Hnúki þau Zuza og Matthías Leó en þau verða 4 ára n.k. laugardag.  Matthías Leó fagnaði afmælinu sínu í dag föstudag og bauð okkur upp á frostpinna.  Innilega til hamingju elsku Matthías Leó og takk fyrir okkur.

Í tilefni af bleikum föstudegi bakaði Gulla vöfflur í kaffinu, nammi, namm. 

Takk fyrir vikuna og góða helgi.  Kveðja Arna, Gulla, Guðmunda, Magga og Sallý.

 

Vikan 26.-30. sept.

Þá er komið að vikulega pistlinum okkar um það sem efst var á baugi í vikunni. 

Í hópastarfi fórum við í hreyfingu, málörvun, tónlist og heimspeki.

Í hreyfistundinni var þrautabraut (hringur) og í lokin slökun og teygjur.  Núna erum við búin að læra að teygja eins og kötturinn, fara í ungbarnastöðuna og gera hvolpateygjuna.  Ekkert smá duglegir krakkar :)

Í  málörvuna erum við að læra úrtalningarþuluna;

Úen, dúen, dín,

mamma fútter fín.

Fútter fín, mamma dín.

Úen, dúen, dín.

en úrtalningarþulur komum við til með að nota til að ákveða hverjir fá að byrja eða gera hverju sinni.  Eldri hópur var líka að æfa sig í að einbeita sér og hlusta á ýmiskonar hljóð og geta upp á hvaða hljóð heyrðust.  Gekk vel :)  Yngri hópur hlustaði á munnleg fyrirmæli eitt og eitt í senn og áttu þau að gera þau fyrirmæli sem fyrir þau voru lögð, t.d. stattu upp og sestu síðan aftur... og fl. og fl.  Gekk mjög vel :)

Í tónlist unnum við áfram með þuluna; epli, epli... og nú prófuðum við að spila á hljóðfæri veikt, sterkt, hratt, hægt.  Að lokum fórum við í leikinn hermenn og hafmeyjar.

Í heimspeki hjá eldri voru erfið orð í textanum um Krúsilíus rædd og útskýrð en yngri hópur litaði sól og tungl eins og fram kemur í textanum í laginu þeirra Háttatími á himnum.  Afrakstur heimspekitímanna má sjá á heimspekiveggnum okkar.

Eftir samsöng á föstudag vorum við að þjálfa fínhreyfingar.  Í boði voru þrjár stöðvar; lita og klippa, perla og þræða upp á band.  Gulla straujaði perlurnar fyrir þau sem náðu að klára spjaldið sitt :) svo verður það hengt upp til skrauts á Hnúki.

Í tilefni alþjóðlega skólamjólkurdagsins 28. sept. s.l. fengum við senda "skólamjólk" í 1/4 líters fernum fyrir alla nemendur leikskólans.  Á Íslandi er haldið upp á daginn undir kjörorðunum "Holl mjólk og heilbrigðir krakkar".  Með deginum vill fræðslunefnd mjólkuriðnaðarins vekja athygli barna, foreldra og starfsfólks á mikilvægi mjólkur í daglegu fæði barna.  Það fannst öllum mikil "sport" að drekka mjólk úr fernu með röri í hádegismatnum þennan dag.  Síðan skoluðum við fernurnar og ætlum að föndra með þær við tækifæri.  Það er alveg ótrúlegt hvað hægt er að búa til úr verðlausum efnivið, eins og þessi tröll sem Hnúkarar eru að gera þessa dagana.

Við minnum á foreldraviðtölin í næstu viku um leið og við óskum ykkur góðrar helgar.  Kv. Arna, Gulla, Guðmunda, Magga og Sallý.

 

Vikan 19.-23. sept.

Þessi vika var umferðavika og við á Hnúki fórum í gönguferð og æfðum okkur í umferðareglunum og í leiðinni tíndum við steina við Langasandinn sem við ætlum að föndra með.  Við lituðum líka umferðamerki sem er við gangbrautir. 

Í samsöng á föstudag spiluðu Alexandra Ósk og Ísak Orri á hjóðfæri undir söng og stóðu sig ekkert smá vel.  Efnilegir hljóðfæraleikarar þar á ferð.

Í hópastarfi fórum við í hreyfingu, tónlist, stig af stigi og heimspeki þar sem þessar myndir voru teknar.

Að lokum þökkum við fyrir vikuna og óskum ykkur góðrar helgar.  Kv. Arna, Gulla, Guðmunda, Magga og Sallý.

 

Vikan 12.-16. sept.

Þessa viku áttum við á Hnúki Listasmiðjuna og fórum í litlum hópum ásamt Gullu og unnum nokkur verkefni tengd haustinu.

Heimspeki og málörvun felldum við niður í vikunni v/listasmiðjuvinnu. 

Fyrsti hreyfingatíminn var á þriðjudaginn og var stöðvaþjálfun, en fyrst hituðum við létt upp og tókum léttar teygjur í lokin.  Við lærðum að beygja okkur eins og kötturinn og svo ætlar Arna að kenna okkur fleiri teygjur smátt og smátt í vetur.

Við fórum í tónlist á miðvikudaginn og allir hópar voru að klappa atkvæði við þulu og æfa sig að spila agað á hljóðfærin og halda takti.  Við fræddumst líka um heiti hinna ýmsu hljóðfæra og í lokin fórum við í skemmtilegan leik þar sem krakkarnir fengu að stjórna á hvaða hljóðfæri var spilað hverju sinni. 

Díana Ósk hélt upp á 4 ára afmælið sitt á mánudaginn og bauð okkur upp á frostpinna.  Innilega til hamingju með afmælið elsku Díana Ósk og takk fyrir okkur.  Í samsöng á föstudag var afmælissöngurinn sunginn fyrir afmælisbörn vikunnar í Vallarseli. 

 

Síðustu daga höfum við á Hnúki lagt sérstaka áherslu á vináttu og mikilvægi þess að vera GÓÐIR VINIR.  Umboðsmaður barna beinir því til skólasamfélagsins að standa fyrir átaki um mikilvægi vináttunnar.

- afhverju erum við vinir

- hvernig vinir viljum við eiga

- hvernig vinir viljum við vera.

Við höfum rætt saman, lesið bækur og sungið lög sem tengjast samskiptum og vináttu og allir eru að "æfa" sig í að vera góðir við hvorn annan.  Ekki má gleyma að námsefnið Stig af stigi tengist þessu en þar erum við að læra að setja okkur í spor annara og taka tilit til náungans.

Að lokum viljum við biðja foreldra að sjá til þess að í hólfunum sé tiltækur sá fatnaður sem börnin þurfa til útivistar, það auðveldar þeim að hjálpa sér sjálf :)

Takk fyrir vikuna og góða helgi.  Kv. Arna, Gulla, Guðmunda, Magga og Sallý.

 

Vikan 5.-9. sept.

Skipulagða hópastarfið byrjaði í vikunni, nema hreyfing sem féll niður vegna deildafundar.  Við viljum minna á hreyfingaföt fyrir næsta hreyfingatíma á þriðjudaginn.

Allir hópar fóru í heimspekitíma.  Eldri krakkarnir rifjuðu upp, fóru yfir reglurnar, hlustuðu á lagið um Krúsilíus og teiknuðu að lokum úr laginu.  Yngri hópur hlustaði á lagið sitt Háttatími á himnum og fór yfir reglurnar.  Skráningar úr tímunum hanga uppi á HEIMSPEKIVEGGNUM OKKAR.

Eldri fóru í Stig af stigi með Sallý og voru að fara yfir reglur og heyra um út á hvað Stig af stigi gengur.

Það gekk mjög vel í hópastarfi og krakkarnir áhugsamir. 

Á miðvikudaginn byrjaði ný stúlka hjá okkur á Hnúki sem heitir Elín Birna.  Við bjóðum hana innilega velkomna til okkar.

Í samsöng á föstudag fengu nokkur börn að spila undir söngnum á trommur og Stína spilaði á gítarinn.

Í næstu viku eigum við listasmiðjuna og þá ætlum við að mála og föndra undir stjórn Gullu.

Takk fyrir vikuna og góða helgi.

Kv. Arna, Gulla, Guðmunda, Magga og Sallý.

 

Ágúst 2011

 

Við bjóðum nýja nemendur og fjölskyldur þeirra innilega velkomin á Hnúk og hlökkum til samstarfs og samvinnu á komandi skólaári.

Í vetur verða 24 börn á Hnúki, 7 börn fædd 2008 og 17 börn fædd 2007. Af þeim komu 5 frá Lundi, 5 utan frá og 14 frá Jaðri.

Við viljum benda ykkur á að undir hlekkjunum hér til vinstri má sjá ýmsar upplýsingar tengdar deildarstarfinu, myndaalbúm og gestabók sem gaman væri að þið kvittuðuð í.

Við bendum ykkur sérstaklega á að kynna ykkur deildarnámskrá Hnúks.

Ágústmánuður fór rólega af stað. Börn og starfsfólk komu til baka úr sumarfríi og við aðlöguðum 4 ný börn sem komu af öðrum leikskólum. Tveir drengir áttu 4 ára afmæli í mánuðinum,

Arnór Valur átti afmæli 1. ágúst.

 

 

 

Arnór Valur 4 ára

 

 

Og Ágúst Ingi átti afmæli 31. ágúst

 

 

Ágúst Ingi 4 ára

 

Við óskum þeim innilega til hamingju.

 

 

Guðmundur Óli eignaðist systur og óskum við fjölskyldunni innilega til hamingju

 

 

 

Líka varð Saga Dís stóra systir í mánuðinum og óskum við þeim innileg til hamingju

 

 

 

 

 

Við viljum minna á foreldrafundinn, þriðjudaginn 6. september kl: 16:30

 

Góða helgi, kveðjur

 

Arna, Guðmunda, Gulla og Sallý

 

 

 

 

 
Vallarsel | Skarðsbraut 6 | 300 Akranes | Sími: 433-1220 | vallarsel@akranes.is