ForsíðaNemendurForeldrarUm skólann
...syngjandi glöð í leik og starfi

Drengur spyr: Var hópastarf í dag?  Kona: Nei í dag er þriðjudagur og þá er tónlist en ekki hópastarf.  Drengur: Já, eins og á laugardögum þá er ekki Kastljós heldur Spaugstofan. 

Prenta vefsíðu

Virkt foreldrafélag er mikil stoð og styrkur hverjum leikskóla.

 

Þegar barn byrjar í leikskólanum verða foreldrarnir sjálfkrafa félagar í foreldrafélaginu.  Félagið er fyrst og fremst stuðningsfélag við skólann og hefur látið margt gott af sér leiða og tekið þátt í mörgu sem kemur börnunum og skólanum til góða. 

Kosið er í (foreldraráð )á haustin og er æskilegt að í því séu tveir fulltrúar af hverri deild ásamt einum fulltrúa frá starfsfólki og leikskólastjóra.

Foreldraráð fundar með leikskólastjóra eftir þörfum.  Þar eru málefni leikskólans rædd, starfið framundan, ýmsar uppákomur og annað sem upp á borðið kemur.

 

Ferða- og skemmtisjóður: Þessi sjóður er alfarið í höndum foreldraráðsins.  Greiddar eru kr. 1500kr.- tvisvar á ári inn á bankareikning á nafni sjóðsins, 2250kr. ef greitt er fyrir tvö börn og frítt fyrir það þriðja. 

 

 Reikningsnúmer ferða- og skemmtisjóðsins er: 0186-26-1207 og kennitalan er 501100-3660

 

Foreldrar eru hvattir til að greiða gjaldið skilvíslega því þannig er tryggt að allir foreldrar leggi í þennan sameiginlega sjóð sem er eingöngu notaður fyrir börnin.

 

# Það er mjög mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir hvað sjóðurinn er að bjóða upp á: Á þessum vetri bauð foreldrafélagið upp á:

 

Tónlistarsýningu Dúó-Stemma, Jólagjafir til barnanna, Jólasvein og systir hans, bauð útskriftarnemum út að borða í útskriftarferð sinni, Vorhátíð/grillhátíð 10. júní, Lambaferð 12. maí.

 

Árið 2009 fagnaði leikskólinn okkar 30 ára starfsafmæli og venjan er að foreldrafélagið gefi leikskólanum gjöf. En þar sem að kreppan skall á, gekk illa að rukka inn í foreldrafélagið og var ekki til peningur til þess að kaupa gjöf. En í vetur kom Gurri (Guðráður Sigurðson, faðir Önnu Katrínar á Stekk sem sinnti stöðu í foreldrafélaginu 2008-09) og hafði samband við okkur um að leikskólinn hefði enga gjöf fengið. Þar sem að vel gengur að innheimta var loksins hægt að verða við því að kaupa glæsilega gjöf sem Gurri hafði yfirumsjón með, að gefa leikskólanum leirbrennsluofn í tilefni af afmæli leikskólans. Þetta er allt í þágu barnanna okkar og fannst okkur í foreldrafélaginu sjálfsagt að verða við þesari bón, og þökkum við Gurra vel fyrir frumkvæðið að þessu :) 

 

Hafi foreldrar einhverjar hugmyndir um hvernig starf félagsins geti verið eða eru tilbúin að aðstoða þegar þörf er á vinsamlegast hafið samband við fulltrúa í (foreldraráði).

 

 
Vallarsel | Skarðsbraut 6 | 300 Akranes | Sími: 433-1220 | vallarsel@akranes.is