ForsíðaNemendurForeldrarUm skólann
...syngjandi glöð í leik og starfi

Það var verið að gefa súrmjólk í morgunmat og eitt barnið vildi fá meira.  Kona hellir meiri súrmjólk í diskinn hjá því sem galar hátt: "líka meiri sykurpúða" 

Forsíða :: Foreldrar :: Fundargerðir
Prenta vefsíðu

24. okt 2011

 

1.  foreldrafundur vetrarins

 

Mættar: Kristín, Ragga, Þórdís, Björg, Hildur, Nanna, Hrefna, Heiða, Eva Lind, Brynja og Rósa

 

Staðan ca 100.þús

 

Búið að senda rukkun í alla heimabanka, kemur sem valgreiðsla-þarf að leita í sumum bönkum. Gjaldið áfram 1500krónur fyrir eitt barna og 2250 fyrir 2 börn.

 

Jólaskemmtunin: ætlum að reyna að panta: Strákurinn sem týndi jólunum og panta bækur fyrir þá foreldra sem vilja, kostar 2000 krónur 8 bækur í pakka, tilvaldar í jólagjöf eða í skóinn. Setjum lista á deildir í nóvember ef þessi sýning verður. Rósa tékkar á þessu!

 

Spurning með geitaferð í vor, Kristín athugar.

 

Ath sölu á ís eins og seinasta vor, nema hafa söluna í desember- Dísa og Rósa athuga málið.

 

Panta jólasvein, Erlingur og Nína eins og í fyrra, jólaball verður 16. des-kl 9:30 og 10. Fyrir börn og starfsfólk, rauður dagur og jólamatur.

 

Jólagjafir frá jólasveininum á ballinu, Rósa athugar með Kalla hjá Latabæ með gjafir!

 

Hittast 12. des og pakka inn gjöfum, tekur max 30 min! ákveðum tímasetningu þegar nær dregur. Rósa pantar jólapappír.

 

Eftir 15. nóv verða settar rukkanir í hólf barnanna.

 

Nanna athugar með jólakort með teikningu barna.

 

 

 

 
Vallarsel | Skarðsbraut 6 | 300 Akranes | Sími: 433-1220 | vallarsel@akranes.is