ForsíðaNemendurForeldrarUm skólann
...syngjandi glöð í leik og starfi

Drengur spyr: Var hópastarf í dag?  Kona: Nei í dag er þriðjudagur og þá er tónlist en ekki hópastarf.  Drengur: Já, eins og á laugardögum þá er ekki Kastljós heldur Spaugstofan. 

Forsíða :: Foreldrar :: Fréttir
Prenta vefsíðu

Hægt er að nálgast word útgáfu af bréfinu hér.

 

Kæru foreldrar leikskólabarna á Akranesi.

 

Í kjölfar funda sem við héldum með ykkur í kjölfar frétta af niðurskurðaraðgerðum bæjarins sendum við bæjarráði eftirfarandi bréf:

 

Akranesi 9. mars 2009

 

Til: Bæjarráðs Akraness

Frá: Fulltrúum í foreldraráðum leikskóla Akraneskaupstaðar

 

Erindi: Sparnaðaraðgerðir á leikskólum Akraness

 

Á fundum sem við héldum með leikskólastjórum, fulltrúum Fjölskyldustofu og foreldrum í leikskólum barna okkar í kjölfar frétta af sparnaðaraðgerðum í tengslum við fjárhagsáætlun 2009 komu fram óskir úr hópi foreldra um að senda formlegt bréf til bæjaryfirvalda. Annars vegar til að koma á framfæri hugmyndum frá foreldrum og hins vegar til að óska nánari skýringa á raunverulegum sparnaði við ákveðnar aðgerðir. Þær þjóðfélagsaðstæður sem við búum við núna kalla á lausnamiðaða hugsun þannig að allir aðilar séu sáttir við þær aðgerðir sem gripið verður til og mikilvægt er að sveitarfélagið og íbúar þess standi vörð um hvors annars hagsmuni.

1.

Sumarlokanir og foreldrar sem verða að taka frí á öðrum tíma

Fram kom á áðurnefndum fundum að sumarið 2009 hafa foreldrar minna svigrúm til að velja sér sumarleyfistíma. Á sumum vinnustöðum liggur fyrir að fólk verði skikkað í sumarfrí í júní eða ágúst, en meirihluti leikskólanna mun loka í júlí. Úr hópi foreldra komu fram hugmyndir um að þeir foreldrar sem þurfa að taka sumarfrí á öðrum tíma en leikskólinn lokar (og þar með taka börnin sín úr leikskólanum á meðan) fái afslátt af dvalargjaldi fyrir þann tíma, eða allt að fjórar auka vikur sem koma til viðbótar við lokunarvikurnar.

Foreldraráð leikskóla Akraneskaupstaðar skora hér með á bæjaryfirvöld að veita verulegan afslátt af dvalargjaldi (til viðbótar við niðurfellt fæðisgjald) fyrir þá foreldra sem vegna kröfu frá vinnuveitanda sínum þurfa að taka sumarfrí á öðrum tíma en leikskólinn lokar. Með þessum aðgerðum myndi bærinn með táknrænum hætti koma til móts við þá foreldra sem lenda í þessari klemmu.

2.

Verður starfræktur gæsluvöllur?

Á fundunum komu fram spurningar um hvort bærinn muni starfrækja gæsluvöll á þeim tíma sem leikskólarnir loka og er þeirri spurningu hér með komið á framfæri. Gæsluvöllur gæti komið sér vel fyrir þá foreldra sem eru skikkaðir í frí utan lokunartíma leikskólana.

3.

Hversu mikið sparast við sumarlokun leikskólanna?

Foreldrar barna í leikskólum Akraneskaupstaðar óska eftir að fá skriflega staðfest hversu mikil upphæð sparast með fjögurra vikna sumarlokun allra leikskólanna á Akranesi.

 

Að lokum vilja foreldraráð leikskólanna fyrir hönd foreldra leikskólabarna á Akranesi árétta að foreldrar hafa skilning á ástandinu og eru tilbúnir að koma til móts við þessar breytingar tímabundið. Þessar sparnaðaraðgerðir eru þó einungis ásættanlegar til skamms tíma og mega alls ekki vera fordæmisgefandi fyrir komandi tíma.

 

Skrifleg svör við bréfi þessu óskast send til hvers leikskóla fyrir sig, stíluð á foreldraráð.

 

Virðingarfyllst,

 

Fulltrúar í foreldraráði Akrasels, fulltrúar í foreldraráði Garðasels,

fulltrúar í foreldraráði Teigasels og fulltrúar í foreldraráði Vallarsels.

 

Þann 19. mars 2009 var bréfið afgreitt á fundi bæjarráðs og fengum við eftirfarandi svar:

 

12.

0902011 - Leikskólar - sumarlokun 2009.

 

Bréf fulltrúa í foreldraráðum leikskólanna á Akranesi, dags. 09.03.2009, þar sem óskað er svara við spurningum er upp hafa komið á fundum í tengslum við sparnaðaraðgerðir á leikskólum Akraness.

 

Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu. Gjaldskrá leikskóla er óbreytt þrátt fyrir að allur kostnaður hafi hækkað verulega, hlutfall foreldra í greiðslu af kostnaði vegna vistunar barna hefur lækkað að sama skapi, þess vegna er niðurstaðan sem fyrr segir. Samkvæmt fjárhagsáætlun er ekki fyrirhugað að opna gæsluvöll á vegum Akraneskaupstaðar.

Með sumarlokun eins og fyrirhugað er á leikskólum sparast stöðuígildi sem nemur 15 mánuðum.

 

Við töldum rétt að upplýsa ykkur um bréfið og svarið við því og gerum við það hér með. Einnig viljum við benda á að eftirfarandi tilmæli til atvinnurekenda á Akranessvæðinu verða aftur send í Skessuhorn:

 

Ágætu atvinnurekendur

 

Bæjaryfirvöld á Akranesi hafa ákveðið að leikskólar bæjarins munu loka í 4 vikur samfellt sumarið 2009.  Í ljósi þess gætu foreldrar lent í þeim aðstæðum að geta ekki sameinað sumarfrí sitt og barna sinna.  Því beina foreldraráð leikskólanna á Akranesi þeim vinsamlegu tilmælum til atvinnurekenda að sýna foreldrum leikskólabarna aukinn skilning og sveigjanleika varðandi töku sumarleyfa.

 

Með vinsemd og virðingu,

 

foreldraráð leikskólans Akrasels,

foreldraráð leikskólans Garðasels,

foreldraráð leikskólans Teigasels,

foreldraráð leikskólans Vallarsels.

 

Með bestu kveðjum,

 

fulltrúar í foreldraráðum allra leikskólanna á Akranesi.

 

 

 
Vallarsel | Skarðsbraut 6 | 300 Akranes | Sími: 433-1220 | vallarsel@akranes.is