ForsíðaNemendurForeldrarUm skólann
...syngjandi glöð í leik og starfi

Einn drengur á deildinni er með ofnæmi fyrir eggjum og hnetum.  Hin börnin eru mjög dugleg að passa uppá að hann fái ekkert sem hann má ekki borða.  Þegar það var slátur í matinn spurði einn drengurinn "Eru nokkuð egg eða hnetur í slátri." 

Forsíða :: Foreldrar :: Ársáætlun
Prenta vefsíðu

Foreldrafélagið stendur fyrir og kostar eftirfarandi viðburði skólaárið 2010-11.

 

Á litlu jólum leikskólans koma jólasveinar með litlar gjafir handa börnunum.  Litlu jólin eru haldin í salnum með börnum og starfsfólki þann 19. desember í ár.  Foreldraráðið mun borga jólasveinana og gjafirnar.

 

Þegar útskriftarárgangurinn fer í sína árlegu útskriftarferð, sem eru sinfóníutónleikar, þá bíður foreldrafélagið upp á hádegismatinn.

 

Í lambaferðinni á vorin, greiðir foreldrafélagið fyrir rútuna.

 

Foreldrafélagið stendur fyrir einni leiksýningu á ári.  Þetta árið var Dúó-Stemma fyrir valinu.

 

Það er árleg hefð að taka hópmynd af útskriftarhópnum, sem þeim er síðan gefin í útskriftargjöf.  Foreldrafélagið kaupir handa okkur rammana utan um útskriftarmyndirnar.

 

Hin árlega grillveisla er í umsjón foreldrafélagsins sem greiðir allan matarkostnað.

 

Ennfremur hefur verið hefð fyrir sumargjöf til barnanna, krítarfata með stórum krítum.

 

 

 
Vallarsel | Skarðsbraut 6 | 300 Akranes | Sími: 433-1220 | vallarsel@akranes.is